Ókei, ég skal alveg styðja það að hátt verð hvetur fólk til að byrja ekki - en á það að vera þannig? Á fólk ekki að ákveða hvort það byrji að reykja sjálft? Ég fékk alla fræðslu um reykingar í barnaskóla en byrjaði samt, það er fullt af fólki sem kaus að byrja ekki, prufaði ekki einu sinni. Verðið spilaði ekki þar inn í heldur vitneskjan um skaðsemina. Þannig að ég spyr aftur: Af hverju er verið að hækka verð á sígarettum?