Gandalfur var upphaflega Maji, sem voru þjónar Vala, en Valar sendu Majana til Miðgarðs og þar voru eru þeir kallaðir vitkar eða Istarar. Valar sendu þá til Miðgarðs til að hjálpa mönnum og álfum í stríðinu við Sauron.
Þetta er frábært, brilljant, ekkert smá flott, ég og vinkonur mínar höfum verið að hlæja að þessu í allan dag. Ég er alltaf að leita að einhveju svona á netinu en finn aldrei neitt. Geriði það nenniði að senda meira svona inn, þetta er frábært!
Önnur setning sem tengist galdrakörlum… því þeir eru svo flottir…. eða kannski tengist hún þeim ekki, en Gandalf segir hana við Bilbo í The Hobbit… gjörðu svo vel!!!! “Don´t be a fool if you can help it” :) (Þetta er Kamma, ekki Begga). P.S. Tolkien var ruglaður snillingur!
þetta er flott grein, en ég hélt að þegar Gandalfur var búinn að detta niður og berjast við balrogginn hefði andi hans farið úr líkamanum en Valarnir hafi sent hann aftur til að ljúka hlutverki sínu á Ördu og þá hafi hann komið aftur kröftugri en áður. Þetta stendur allavegana í encyclopedia of Arda en ég veit samt ekki hvort þetta er rétt.
ég er orðin eitthvað alveg rugluð, ég hélt alltaf að þetta væru dríslar í Hobbitanum en síðan orkar í Hringadróttinssögu, það væru bara engir dríslar í Hringadróttinssögu því það væru svo fáir eftir eftir Fimmherjaorustuna. og að Há-Orkar væru blanda af dríslum, orkum og einhverju öðru, eða það skildist mér allavega í myndinni. Ég fatta þetta ekki alveg!
Frábær grein og yndislega fræðandi. Ég að byrja að safna mér upplýsinga um þetta mál og fleiri og hef ótrúlega mikinn áhuga á þessu öllu saman.ég er samt bara rétt byrjuð og finnst ég vera að drukkna í þessu og held að það eigi eftir að taka mig mörg ár þangað til ég fæ þetta nokkurn vegin á hreint. Hvað ertu annars gamall?
Vá, eins og talað út úr mínu hjarta, ég er líka nýbúin að lesa hana og VÁ! Hún er frábær besta bók “ever”. Aldrei lesið betri bók á ævinni!! Ég las hana reyndar á íslensku en ég er að byrja að lesa hana á ensku. Svo þegara ég er búin að því ætla ég að snúa mér að Silmerlinum( látið mig vita ef þetta er vitlaust skrifað):)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..