Ég lá í rúminu með augun opin. Eins og vanalega gat ég ekki sofið. Ég bylti mér fram og til baka. Lá á hliðinni, lá á maganum, lá á bakinu en allt kom fyrir ekki. Allt í einu heyrði ég kunnuleg hljóð, vindurinn gnauðaði í eyrum mínum og svo var sem einhver bankaði á gluggann. Ég klemmdi aftur augun “Þetta var ekki að gerast, ekki aftur. Þetta var búið að gerast á hverju kvöldi síðastliðið ár, alveg síðan…” Ég henti sænginni af mér, stóð upp og fór inn í eldhús. Ég teygði mig í glas og fékk...