Snæfell á eftir að spila við Hamar(ú), ÍR(h), Breiðablik(ú), Njarðvík(h), Hauka(h) og KFÍ(ú). Ég sé því miður Snæfell ekki tapa 2 leikjum af þessum sem eftir eru. Kef verður þá líka að vinna alla sína leiki en Kefarar eru búnir að vera alveg skelfilegir á útivelli í vetur og eru búnir að tapa fleiri leikjum þar en vinna. Kef á eftir að spila við Breiðablik, Tindastól, KR og Hauka öll á útivelli og KFÍ, Grindavík og Þór heima.