Ég verð að vera ósammála þér þarna, marsering er ekki bara einfaldlega ganga. Þú gætir allt eins sagt að dans sé bara ganga ef þú æltar að fullyrða að marsering sé bara einfaldlega ganga. Þegar þú marserar í dansi þá eru mörg mismunandi spor til sem fylgja öll takti tónlistarinnar, sem er einmitt það sem dans gengur útá, að fylgja sporum í takt við tónlist. Þó það sé vissulega gengið meira í marseringu en flestum öðrum tegundum dans (svo sem samkvæmisdönsum, suður-amerískum dönsum og...