Jæja það er síðasti sjens að skrá sig í liðstjórann. Við erum bara 3 eins og er í hugadeildinni og vonaðist ég eftir allavega 4 í viðbót. Ég býst við því að Ubervox, galbotrix og aiwa komi en svo er maður að vonast eftir snilla og fleirum.

TAKIÐ EFTIR! Það er ekki hægt að búa til liðið fyrr en það hefur verið greitt fyrir leikinn.

TAKIÐ EFTIR 2! Ef þið gefið upp hotmail þá kemur pósturinn í “junkamail” Hann er aðeins í viku þar!

TAKIÐ EFTIR 3! Leikurinn verður arfaslakur og leiðinlegur ef þú missir af fyrstu umferðunum. Ég missti bara af þeirri fyrstu í fyrra og varð strax 1800 stigum á eftir fjölskyldu minni en við tökum öll þátt. Það er ómögulegt að ná þeim útaf þau fá meiri pening, betri ökumenn og fleiri stig í hverri umferð og urðu að lokum 5000 stigum fyrir ofan mig.

TAKIÐ EFTIR 4! Þetta er meistara leikur og ef þið missið af þessu þá eruði að missa af miklu. Það er hægt að hafa 2 lið og MOTOGP lið. Allir að signa sig strax!!!!!!!!
kv Heiða