Hversu oft höfum við ekki spurt sjálf okkur þeirrar spurningar, hvort til sé eitthvað annað sem við trúum að sé til, en fáum ekki skynjað með venjulegum skynfærum. Ekki verður reynt að gefa svör við spurningum á þessum vettvangi, sem útilokað er fyrir nokkurn mennskan mann að svara. Hugmyndin er einungis að benda á þær leiðir sem til greina koma við leitina. Líkja má leit mannsins við fjallgöngu, þar sem litlar vörður hafa verið settar hér og þar til leiðbeiningar. Hægt er að nota vörðurnar...