Lakklím er líka til hálfglans og svo frekar matt þannig að ef að þú ert með einhvern pínu glans á veggjunum (í málningunni)ætti þetta ekkert endilega að sjást svo mikið útfyrir. Athugaðu bara að því hvítari litur sem er undir servíettunum, því skýrari verða myndirnar (litirnir)á servíettunum. Ef þú t.d. hefur rautt undir servíettunni, þá kemur rauð slykja í gegn. Það gæti líka verið mjög sniðugt að nota lakklímspappír (eins konar gjafapappír) í þetta, þá skiptir engu máli hvaða litir eru...