Ég er nú bara búinn að kynna mér 2 klúbba, Geirfugl og Lágflug, og heillaðist ekki alveg nógu mikið í fyrstu. Annarsvegar hefur Geirfugl margar vélar fram að tefla, en þar er 60 tíma hámark á ári. Hjá Lágflugi máttu hinsvegar fljúga ótakmarkað, en þar er framboðið af flugvélum ekki mikið. Það hlítur því að vera sniðugt að skella sér út. Alltaf gott veður og ekki skemmir hátt gengi krónunnar fyrir.