Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Óska eftir Lödu Sport. (3 álit)

í Bílar fyrir 13 árum, 2 mánuðum
Ég óska eftir að kaupa gangfæra Lödu sport fyrir lítið. Hún má vera 2000 og eitthvað módel en má ekki kosta mikið. Ég er lítið hérna inná svo þið getið haft samband við mig á 2bad4u@visir.is ef þið lummið á einu eintaki.

Getur það verið? (3 álit)

í Börnin okkar fyrir 13 árum, 10 mánuðum
Sælar mömmur. Ég á engin börn sjálf en mig vantar smá ráðleggingar frá ykkur. Ég er búin að vera með mínum manni í tæp 4 ár, búin að vera á pillunni í 2 ár og hef aldrei klikkað á henni eða sleppt pillupásu. En ég mundi allt í einu eftir að ég gleymdi að taka sl 2 daga þannig að ég gleypti þær allar þrjár í morgun úr stressi. Er möguleiki á óléttu? Það er vika síðan ég byrjaði á nýju spjaldi.. Kveðja ein stressuð hérna. :S Bætt við 8. maí 2010 - 14:20 Og já ég er búin að stunda kynlíf 2svar...

Hvað er í gangi með Leiðarljós? (6 álit)

í Sápur fyrir 13 árum, 11 mánuðum
Uhhh Michelle er gift en ekki gift honum Jesse. Holly orðin klikkuð og Annie með allt annað andlit (ég veit forsöguna af því). Hvað er að ske?

Gata tungu sem er með gróið gat. (1 álit)

í Húðflúr og götun fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Komiði sæl kæru hugarar. Það er nefnilega mál með vexti að ég fékk mér gat í tunguna snemma árið 2006. Ég fór í erfiða aðgerð oktober 2006 og gat ekki sett lokkinn í aftur. Gréri sem sagt fyrir. Núna í dag langar mig í gat aftur. Spurningin er, er það nokkuð æskilegt úr því að ég er með ör eftir fyrri lokkinn?

Hef pláss fyrir 2 frá Egilsstaði til Reykjavíkur. (1 álit)

í Ferðalög fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Komiði sæl. Ég á 2 laus sæti frá Egilsstöðum til Reykjavíkur. Ég get alveg tekið fólk upp í á Akureyri ef óskað er. Ég mun sennilega leggja af stað um 10 um morguninn frá Egilsstöðum. Akureyri til Reykjavík, sanngjörn þátttaka í eldsneytisverði. Þeir sem hafa áhuga geta sent mér einkaskilaboð hérna á huga. Diskoflugan Bætt við 19. maí 2009 - 12:26 Þetta átti að vera Egilsstaðir til Reykjavík.

Kostulegasti kennari í skólanum þínum (279 álit)

í Skóli fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Jæja.. Ég er að pæla hvort að þið lummið á svolitlu sniðugu um ykkar kennara! Eru kennarar í ykkar skóla sem eru spes eða stórkostlegir á sinn máta? Endilega deilum svona! :D T.d. gengur enskukennarinn minn í leðurbuxum þegar honum dettur í hug.. Stundum er hann í lopapeysu með buxum. :D Bætt við 19. nóvember 2008 - 23:56 Stundum er hann í lopapeysu með buxum. meinti ég með þegar hann enskukennari er í leðurbuxum, villist stundum lopapeysa með og útkoman er sprenghlægileg! Þar að auki er...

Eftir brjóstaminnkunina mína.. (14 álit)

í Heilsa fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Nú er ég komin úr þessari minnkun og þvílikt frelsi er ég búin að fá þrátt fyrir að vika er síðan. Er komin í íþróttatopp sem reddar mér í einu og öllu og svo er eg ekkert að reyna neitt á mig því annars er hætta á að saumarnir rifni. En þetta er orðið svo allt annað líf! Ég hvet allar konur að hugsa sig 2svar um.. Því að margt er hægt að gera með aðeins minni brjóst og látið sig líða betur. Ég get mælt með mínum lækni, hann er frábær. Kveðja, Lilja

Anna Phil (6 álit)

í Spenna / Drama fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Ég verð að segja að þessir þættir eru snilld! Þættirnir eru um lögreglukonuna Önnu Phil og vinnufélaga hennar hjá lögreglunni í miðborg Kaupmannahafnar. Þessir þættir eru sýndir hjá RÚV á mánudagskvöldum kl 21:15. Mjög gott tækifæri fyrir fólk að dusta rykið af dönskunni. :) Bætt við 18. ágúst 2008 - 21:24 ÉG meinti Anna Pihl. :)

Tíhí.. Ég var að koma af baki.. (4 álit)

í Hestar fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Hehe.. Varð að monta mig aðeins.. :) En ég veit það að öllum finnst gaman að fara í útreiðatúr sér til skemmtunar. :) Það léttir á manni.. Bætt við 18. ágúst 2008 - 20:06 Og ég var að koma aftur úr útreið.. :) Þá er ég búin að fara á 6 hesta í dag. Ég held að þetta sé komið gott í dag. :)

Þeir gömlu og góðu Hugarar (20 álit)

í Hugi fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Góðan dag. Fyrst að ég er hérna á annað borð að skoða gamlar greinar eftir gömlu góðu Hugara þá vil ég nefna það að ég sakna þeirra. HJARTA, Lecter, Glinglo, Hulda, simaskra og margir aðrir! Endilega nefnið þá Hugara sem vantar mest á þessa síðu í dag. :)

Nokia 3210 ÓSKAST! (4 álit)

í Farsímar fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Já sæl.. ÉG væri alveg til í að fá svoleiðis síma aftur. :) Ef einhver á svoleiðis síma í lagi einhverstaðar oní skúffu og vill selja hann, endilega látið mig vita með að senda mér pm með titilinn 3210. Takk takk - Lilja

Fyrir þá sem horfa á ekki á þessar sápur - SMELLA HÉR! (1 álit)

í Sápur fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Jæja. Er þetta ekki komið nóg? Við eigum okkar áhugamál hérna sem við viljum gjarnan eiga saman og viljum ekki láta aðra skemma það með því að skíta yfir mann með “vá á ekki að hætta að sýna þetta?” Uuu.. Nei? Horfðu á eithvað annað ef þetta blindir á þér augun. :) Varð að koma þessu frá mér. :)

Amanda! (1 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 4 mánuðum
ÉG hata þessa kerlingu!! ÉG hata Ross núna fyrir það að vera kyssa hana.. Og Blake fyrir utan husið!! Hvað gersit næst..

Mig langar í Saab 99 gamlann.. (3 álit)

í Bílar fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Hellu.. Sko, málið með mig er það að pabbi minn átti Saab 99 árgerð ‘81. Hann var seldur 2 árum áður en ég tók bílprófið. 4 árum seinna í dag er ég alveg veik fyrir þessum bílum (veit ekki í anskotanum af hverju) og mig langar í svona bíl. Veit einhver sem á svona bíl sem er í toppstandi sem vill selja’nn? :)

Reva & Josh (3 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Vá ég er búin að bíða eftir þessu atriði í 5 ár!! Josh og Reva horfa á hvort annað og mætast. :) Ég er ennþá í móki eftir þáttinn. :)

Ertu buinn að vera á Hallormstað Nýlega? (1 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ef svo er, værir þú til í að selja mer þær? ;) Bætt við 21. ágúst 2006 - 14:17 Í Hússtjórnarskólanum á Hallormstöðum er ég að meina. Á einhver bækur sem voru notaðar í þeim skóla?

David Hasselhof (15 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Já gaurinn er alltaf svalur, eða hitt og.. Hér er það nýjasta frá honum.. Enjoy all. http://www.kvikmynd.is/myndir/jump_in_my_car.jpg

Nadine og hennar sýnir (8 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Well. Er þetta ekki komið á hreint hver verður myrtur? Þetta virkar soldið þannig. Brent með Kertastjakann góða og hlæjandi. Nadine taldi Marion (Brent) í hættu en hún sjálf var nú í hættu. Föstudagur og framhald á þessu á morgun. Ég sit sem fastast við imbann og horfi á þetta! :D

Alan-Reva (2 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hefur Alan sagt henni að hún eigi börn með Josh? Hvað þá hann Dylan? :S T****sonur hann Alan.

Matareitrun (3 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Svo var það mjög fyndið þegar allir fengu matareitrun í Brúðkaupinu eftir matinn hennar Nolu. Rick svo fyndinn að flokka helstu óvinum og fjandmönnum í sama herbergi. ;) Hvað ætli Nola hafi sett í matinn sem olli þessar salmonellu? Rotnað svín? :S

Marion/Brent að taka kast. (2 álit)

í Sápur fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Múhahaha! Þarna fékk Brent að finna fyrir því hvernig það sé þegar einhver sé að reyna að taka af manni völdin! Brent var næstum nauðgað af KARLMANNI!! :D Ég grenjaði úr hlátri. Ég snökkti líka á endanum því að ég hló ennþá svo mikið. *Múhahaha* Ég hef aldrei hlegið eins mikið að leiðarljósi (fyndin atriði, ekki bögg). ;)

Strákar sem lemja kærustur sínar (238 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Vá.. Ég fór í 2 partý í nótt og í þeim báðum voru sitt hvort parið að rífast sem byrjaði með því að gaurinn byrjaði að lemja kærustu sína! Og hinn gaurinn gerði það líka. Í fyrra partýinu fóru allir í gaurinn og gengu á milli þeirra en í hinu partýinu hljóp ég ein út til þess að hugga vinkonu mína og hún segir við mig að hann er svo góður og vilji ekki missa hann og bla bla.. Jakkinn minn blóðugur eftir þetta að böslast með hana í bíl og keyra hana á slysó. Svo núna hringdi hún í mig áðan og...

Lecter (20 álit)

í Sagnfræði fyrir 18 árum
Er ég ein um það að vilja fá Lecter aftur? Góður penni.. En ég veit að hann hefur hneykslað marga. Ég er bara tala um greinar hans.

Hraðakstur.. (37 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Jæja. Þá var ég böstuð af löggunni. Reyndar miðvikudagskvöldið. Var á vegi sem mátti bara vera á 50 en ég var á 72. En hún lækkaði það niður í 69. Ég fékk sektarbréfið mitt áðan. Sektin er uppí 10.000 kjell og 7500 ef ég borga fyrir 22 apríl.. Bögg! Aldrei að vera að flýta sér heim útaf einhverju því að löggan leynist víðar..

Hnakkinn nældi sér í hnakkamelluna (13 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Hahahaha.. Ásgeir Kolbeins nældi sér í Brynju Björg. Fyndin fyrirsögn í Séð&Heyrt. Endilega lesið þetta. Þau eiga svo vel saman greyin. Hnakki og hnakkamellan. :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok