Vá.. Ég fór í 2 partý í nótt og í þeim báðum voru sitt hvort parið að rífast sem byrjaði með því að gaurinn byrjaði að lemja kærustu sína! Og hinn gaurinn gerði það líka.

Í fyrra partýinu fóru allir í gaurinn og gengu á milli þeirra en í hinu partýinu hljóp ég ein út til þess að hugga vinkonu mína og hún segir við mig að hann er svo góður og vilji ekki missa hann og bla bla.. Jakkinn minn blóðugur eftir þetta að böslast með hana í bíl og keyra hana á slysó. Svo núna hringdi hún í mig áðan og sagði að þau væru ekki að fara að hætta saman. Hún kenndi sjálfan sig um að kærastinn fór að lemja sig.

Hvað eru svona strákar að pæla? Það er ekki í lagi með svona fólk!