Ég hafði ástæðu til, ég er einn af þeim sem ekki má segja neitt eða gera neitt án þess að það sé hlegið að því eða gert grín að því (ekki í góðum skilningi), þannig að auðvitað var ég dálítið feiminn við að skrifa hingað, því sumir þekktu nickið mitt. Svo í vetur breytti ég um nick og eftir að hafa verið með það í nokkrar vikur ákvað ég að taka af skarið og prófa hvort einhver þekkti mig, og mér til mikillar ánægju fékk ég svar frá einum sem þekkti nickið mitt áður (I think) sem vissi ekki...
Ég verð því miður að vera sammála þér, þessi dönskukennsla nýtist okkur lítið, því að þó að við kunnum ritmálið þá skiljum við ekki Dani þegar þeir tala dönsku. Þó að fólk sé alveg tilbúið til að læra dönsku áttu ekki að kalla það nörd og vera með fordóma eins og hér fyrir ofan, því að mér t.d. finnst ágætt að læra þetta, og er í rauninni mjög góður í skriflegu hliðinni og fæ yfir 8 í prófum, samt vil ég ekki vera kallaður nörd!
Í skólanum sem ég var í (Öldusels) þá er bekkjunum alltaf splundrað upp þegar þau koma í 8. bekk, það var alveg fínt, maður fékk að velja 2 sem maður vildi vera með, og ég fékk mínar óskir uppfylltar :} Þar var ekki mikil óánægja með þetta, allaveganna virtust flestir ánægðir :}
Ég veitiggi, nenni eigi að telja, en eitt get ég sagt ykkur, að í vetur, tímabilið október-apríl, fékk ég 0 skilaboð og skrifaði 0 innlegg :} Samt skráði ég mig inn á næstum því hverjum degi, ég þorði bara eigi að skrifa neitt :{
81.000… En þar sem margir í fjölskyldunni gefa saman þá er þetta skiljanlegt (Það er fjölskylduhefð að systkini mömmu gefi svefnpoka og bakpoka saman) Ég er samt ánægður með það sem ég fékk, þó að ég noti það ekkki, annað en sumir (eitt svar neðarlega) :}
Mömmu og pabba, tæpur 1,5 metri á breidd, hægt að lyfta upp bæði baki og fótum, yndislegt. Mig hefði ekki langað frekar í tölvu eins og allir hinir fengu frá foreldrum sínum :}
Sandkassar eru ógeðslegir, fullt af sandi sem kettir hafa losað úrgang í, svo þegar manneskja úr sandkassa kemur inn fer sandur út um öll gólf, það er ógeðslegt!
Nei, ég hef aldrei gert korka, aðeins stjórnandi getur gert korka. Það sem þú kallar korkur, er þráður. Þú skrifar þráð á korkana, þú svarar þræði, er erfitt að skilja?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..