Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Ulfhildar
Ulfhildar Notandi frá fornöld 246 stig

Lífið er kind (sagði Einfarinn -2004) (0 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum
Sælt ágæta fólk. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi kom í skólann minn um daginn og sat fund þar sem hann var spurður spjörunum úr. Þar talaði hann um ýmislegt viturlegt og annað vitlaust, en ég meina…enginn er fullkominn. En það sem kom mér á óvart á þessum fundi var hvað margt ungt fólk er í raun heilaþvegið af fjölmiðlum og ábyggilega foreldrum sínum, helaþvegið af viðhorfi og skoðunum annara. Ísland er svolítið í dag þannig að það má ekkert vera róttækur. Maður á bara að sætta sig við...

ónefnt (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 4 mánuðum
ég vaknaði, hár mitt var horfið. steig framúr og las allar bækurnar í húsinu. andartaki seinna endaði vekjaraklukkan í kornfleggs disknum.

Sigur Rós. (44 álit)

í Rokk fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hljómsveitin Sigur Rós var stofnuð árið 1993 af Jóni Þóri Birgirssyni (söngur), Georgi Hólm (bassi) og Ágústi Ævari Gunnarssyni (trommur). Georg og ágúst höfðu spilað saman með nokkrum böndum en Jónsi hafði aðallega hjálpað vinum sínum í hljómsveitinni Bee Spiders. Drengirnir þrír tóku upp lagið Fljúgðu og eftir það hófst tímabil sem þeim drengjum óraði örugglega ekki fyrir á þessum tímapunkti. Fyrst um sinn kölluðu þeir sig Victory Rose, en breyttu því fljótt í íslensku þýðinguna. Þeir hófu...

Jagúar. (27 álit)

í Jazz og blús fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Sumarið 1998 stofnuðu sex hljóðfæraleikarar hljómsveitina Jagúar. Sveitin leikur funk-tónlist, með keim af soul, jazzi, latin og rokki. Hljómsveitin er skipuð vel menntuðum og færum hljóðfæraleikurum og hefur liðsskipanin haldist frekar stöðug, fyrir utan trompet- og saxófónleikara. Trommuleikarinn Sigfús Örn Óttarsson hefur setið fast við trommurnar, en ég held að einhvern tíma hafi einhver annar trommað vegna veikinda Sigfúsar. Birgirssynirnir Börkur gítarleikari og Daði hljómborðsleikari...

Tónleikar í Hafnarhúsinu... (2 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Í gærkvöldi, fimmtudagskvöldið 10. Júlí, skellti ég mér á allmagnaða tónleika í Hafnarhúsinu. Þar lék jazzgítarleikarinn Hafdís Bjarnadóttir með hljómsveit sinni og svo lék Egill Sæbjörnsson einn og óstuddur með gítarinn og röddina eina að vopni. Jazzsextett Hafdísar lék nokkur lög af plötunni Nú, sem kom út um síðustu jól, tvö ný lög eftir hana og nokkrar nýjar útsetningar af lögum á plötunni. Í sveitinni var auk hennar, trommari, bassaleikari, klarínettu- og bassaklarínettuleikari, annar...

Egill Sæbjörnsson - Tonk Of The Lawn (11 álit)

í Rokk fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Egill Sæbjörnsson er snillingur mikill, en afar sérstakur maður. Hann hélt meðal annars listasýningu hér um árið, þar sem hann birti m.a. upp á vegg, myndband þar sem hann fróaði sér. Árið 2ooo kom út diskurinn Tonk Of The Lawn sem er hrein snilld. Þrátt fyrir að diskurinn sé ekki nýr, ætla ég samt að fjalla aðeins um þetta meistaraverk. ————————————– —————————– Lag 1 - You are my loving insane. Mjög sérstakt lag. Trommurnar eru frekar raftónlistarlegar en gítarinn er með einhverjum rokk...

Blásturshljóðfæri í íslenskri rokktónlist. (24 álit)

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Alltaf vantar greinar inn á þetta áhugamál, svo hér kemur ein. Ég ákvað að tína til nokkra íslenska diska sem ég á og athuga hvernig íslenskum rokkhljómsveitum tekst til að blanda blásturshljóðfærum í tónlist sína. Ég valdi nokkra góða diska og svo c.a. eitt lag af hverjum disk. Úlpa - Mea Culpa Magnús Leifur, söngvari og gítarleikari Úlpu, spilar bæði á básúnu og trompet á disknum. Ég veit að hann lærði á básúnu og var meðal annars í Lúðrasveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, en hvort hann...

Fávitar (6 álit)

í Smásögur fyrir 20 árum, 11 mánuðum
“Fávitar, þeir voru fæddir á sama stað, allir saman”. Það trúðu mér ekki allir þegar ég stóð upp á borðinu og kallaði þetta svo hátt að allir gestir veitingahússins gláptu á mig. Jafnvel fólkið sem var á listasýningunni á hæðinni fyrir ofan kom niður til að sjá andlit þess sem sló þessari líku rosalegu þögn á hópinn. En svo fór fólk aðeins að róast niður aftur og gamli maðurinn á næsta borði við mig fékk sér ábót á kaffið. Mér leið vel aftur. Ákvað að fara upp og kíkja á þessar örfáu myndir...

kona húsvarðarins (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 11 mánuðum
sem 4 menn. aldrei þessu vant var hún alveg að deyja. mætti nokkrum kríum og einstaka folaldi, einu rauðu, nokkrum svona og hinsegin. lét þá ekki stjórna sér, rann áfram í gegnum bæinn sem þeir bjuggu í. 8 manns voru viðstödd þegar það varð. þegar það varð loksins eitthvað úr syni hennar, sem áður hafði klappað folaldinu, drukkið úr niðurfallsrörinu, rennt sér niður grasbrekkurunar, en var núna með ýsuflök í vösunum. hún var stolt af syni sínum, kona húsvarðarins.

St. Germain - Tourist (5 álit)

í Jazz og blús fyrir 21 árum
Jæja, ég verð nú líka að senda inn grein fyrst að ég skráði mig í “ég ætla”. Þetta er nú ekkert nýr diskur en ég nennti ekki að skrifa um einhverja Duke Ellington diska sem ég á. Ég uppgvötaði St.Germain þegar ég var á Bókasafni Hafnarfjarðar og var að leita að einhverju sniðugu. Sá Tourist og ákvað að skella mér á hann. Hlustaði á hann í tvær vikur og skilaði honum svo. Vegna haturs míns á diska-brennslu, keypti ég svo dikinn á 2fyrir2000 tilboði í staðinn fyrir að brenna hann. Þessi diskur...

Þau (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Þau voru eins og veðrið. Góð og vond til skiptist, skemmtileg og leiðinleg til skiptist. En eins og í veðrinu. er alltaf hægt að finna, eitthvað gott í því vonda, eitthvað vont í því góða. Alltaf hægt að finna, eitthvað skemmtilegt í því leiðilega, eitthvað leiðinlegt í því skemmtilega. Alltaf eitthvað nýtt. Ekkert eins.

Móðir mín Ljónshjarta. (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Það er ég, það er 5, það er sonur alheimsherða. Þetta ert þú, þetta er mammaðín, þetta er dóttir kattakvenna. Þá var ljós, Þá var nýlenda, Þá var móðir dillumdansablenda. Því var landið, því var sambadansari, því var x…….trommuleikaramennda. ————————- ———— Svo var ljónamamma, svo var geirfinnur, svo var hiti. Síðan kom hann, síðan kom vindurinn, síðan kom rasskinnasviti. Svo er ég þang, svo er faðir minn kona, svo er dóttir mín smiti. Seinna komu einkenni, seinna komu fætur, seinna kom...

Halim-Al ( textinn ) (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Halim-Al. Lag og texti : Fjöllistahópurinn Mújaffa Ég er “the child of the he”, Halim-Al. Ég er “the child of the he”, og ég ræni þér í nótt. Ég er “the child of the he”, Halim-Al. Ég er “the child of the he”, og ég ræni þér í nótt. Halim-Al, rænir þér í nótt. Halim-Al, drekkur úr sjampóbrúsa. Halim-Al, drekkur þig í nótt. Halim-Al, rænir sjampóbrúsa. Magnús Uggla. Halim-Al, rænir þér í nótt. Halim-Al, drekkur úr sjampóbrúsa. Halim-Al, drekkur þig í nótt. Halim-Al, rænir sjampóbrúsa....
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok