Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Markið hans Ronaldinho (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég hef ekki skrifað grein eða kork mjög lengi á huga en núna verð ég að byrja aftur útaf þessu yndislega marki hans Ronaldinho!! Hann er ekki menskur! - Hvernig er hægt að standa 30 metra fyrir utan markið og án tilhlaups fá svona dúndurskot á boltann þannig að hann þrumast beint upp í hægra hornið á markinu!! Eitt af flottustu mörkunum sem að ég hef nokkurn tímann séð!! Kv. StingerS

Hjálp!! (2 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég verð að vita allt um jarð og vatnshita (svona orkulind sem er notuð á íslandi) en ég finn enga síðu á netinu þar sem að stendur allt um orkulindin. Get ég fengið einhvern texta af einhverjum eða getur einhver skrifað tengil þar sem að stendur allt um orkulindina. Má vera á Íslensku, ensku, saensku og þýsku :P Kv. StingerS

La liga (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Eins og venjulega eru leikir í La liga núna um helgina og Barcelona er 11 stigum á undan Real Madrid sem eru í öðru sæti í deildinni. Ég ætla að skrifa um 3 leiki í dag og á morgun og hvernig ég held að þeir fari!! Deportivo - Barcelona Mjög spennandi leikur sem að gæti alveg endað með því að Deportivo vinni því að þeir geta margt á heimavelli og eru komnir aðeins í gang núna! Ég spái 2-1 í þessum leik. Real Madrid - Málaga Þarna vinnur örugglega Real sem þýðir að ef að Deportivo vinna...

Barcelona öruggir (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Já, ég held að Barcelona séu alveg öruggir með La liga sigurinn. Ekki bara það að núna þegar þeir eru dottnir úr Champions league eiga þeir eftir að einbeita sér að La liga og engu öðru heldur er það líka útaf því að Real Madrid eru núna 11 stigum á eftir Barca eftir ósigurinn í suður Madrid á móti heimaliðinu Getafe sem að eru að standa sig vel. Þess má geta að Getafe er mjög ungt lið og er í rauninni bara með gamla Real Madrid og Atlético Madrid leikmenn. Leikurinn fór 2-1 en Santiago...

Ekkert spænskt lið eftir :( (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Já í fyrsta sinn í mörg mörg ár datt Real Madrid úr keppni fyrir 8 liða úrslitin. Þetta þýddi einnig að það er ekkert spænskt lið eftir sem er mjög mjög skrítið þar sem að mér finnst spænska deildin besta deildin í heimi með bestu liðunum. En maður skilur þetta auðvitað þegar maður hugsar útí að Barcelona fékk að mæta Chelsea sem eru mjög hættulegir núna undir stjórn Mourinho og Real keppti við Juventus sem að mér finnst vera besta lið Ítalíu!! Svo voru báðir leikirnir mjög jafnir. Önnur...

Lyon rúllaði yfir Bremen (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Lyon er búið að koma skemmtilega á óvart í Champions league og í rauninni kom Werder Bremen líka mjög á óvart í riðlakeppninni en í gær unnu Lyon með 7-2 í leik sem var örugglega mjög skemmtilegur. Hvað haldiði annars um möguleika Lyon í meistaradeildinni. Maður á aldrei að gleyma neinu liði því að þetta lið gætu örugglega unnið Chelsea og AC Milan á góðum degi. Eins og einhver annar sagði þá er fótbolti óútreiknanlegur. Fyrir þá sem að vita það ekki þá eru þetta allavegana úrslitin úr...

Ronaldinho elskar Barcelona. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Mér fannst það svo skemmtilegt þegar ég rakst á grein þar sem að sagt er að Ronaldinho verður ánægðari og ánægðari með hverjum degi í Barcelona og hann elskar klúbbinn mjög heitt. Hann hefur sagt að hann vilji vera hjá Barcelona út allan ferilin. Hann sækist líka eftir að vinir hans í fótboltanum sem koma frá Brasilíu komi til Barcelona. Til dæmis Edu!! Já ef maður elskar eitthvað svona voðalega mikið þá er ekki skrítið að maður er alltaf brosandi og bestur í heimi!!' Kv. StingerS

Tippa fyrir meistaradeildarleikina (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Ég og örugglega margir aðrir er orðinn alveg hrikalega spentur fyrir Champions league leikina á þriðjudaginn og miðvikudaginn (og þriðjudaginn eftir eina og hálfa viku). Til þess að byrja leikinn aðeins fyrr þá datt mér í hug að koma með smá leik. Reyndar að þá datt mér í hug að allir sem að skoða þetta geta tippað fyrir leikina og sá sem að er með flest rétt vinnur þá að sjálfsögðu. Ég byrja þá bara: ———-1 X 2————– —————————– Chelsea–1——Barcelona Milan—–1——Man. United Lyon——–X—-Bremen -...

Barcelona spilar illa (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum
Já, aumingjas Barcelona eru búnir að vera að spila alveg hryllilega illa undanfarið. Jafntefli á móti Numancia í deildinni og jafntefli á móti Espanyol í deildinni og núna áðan unnu Barcelona Osasuna 1-0 en spiluðu alveg hryllilega. Í rauninni voru bara 3 leikmenn í Barcelona sem spiluðu eins og þeir gera venjulega og það voru Valdes, Puyol og Eto'o. Ronaldinho og Iniesta voru verstir held ég og ef að þeir og þá sérstaklega Ronaldinho eiga eftir að spila eins og þeir gerðu áðan á móti...

Shutterstock (1 álit)

í Ljósmyndun fyrir 19 árum
Ég var að pæla með síðuna sem var auglýst í grein einni um daginn. Það er að segja www.shutterstock.com . Fyrst langar mig bara að spurja notendur á síðunni hversu mikið þeir eru búnir að selja fyrir og svo langar mig að spurja hvernig maður fær borgað því að maður ætti auðvitað að fá borgað núna eftir febrúar eins og stendur á síðunni. Verður þetta sent heim til manns eða?? Annars er ég búinn að selja fyrir um það bil 3 dollara en það er bara því að ég var einungis með 2 eða 3 myndir inná...

Könnunin (24 álit)

í Tíska & útlit fyrir 19 árum, 1 mánuði
Já, fyrirgefiði að ég sé með einhver leiðindi en einhvernveginn get ég ekki fattað afhverju 11% hafa svarað kk: já!! Eru virkilega gaurar hér sem að mála sig á hverjum degi?? Nei fyrirgefið, leifið mér að breyta spurningunni aðeins: Eru virkilega gaurar hér sem að mála sig einhverntímann??? Kv. StingerS

Barcelona baráttan. (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 1 mánuði
Í gær spiluðu Barcelona á móti hinu Barcelona liðinu í La liga, Espanyol. Barcelona litu kannski meira á þetta sem upphitun fyrir Chelsea - Barcelona á miðvikudaginn 8.mars. Þrátt fyrir 0-0 í þessum leik fannst mér þetta ótrúlega skemmtilegur leikur. Deco var í einhverju fjöri og var á fullu að klobba alla og gera einhverskonar Ronaldinho brögð. Barcelona voru með öll færin og ég held að leikurinn hafi farið 15-1 í möguleikum. Menn leiksins að mínu mati voru Ronaldinho sem að hefur fengið...

Ham (21 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ýtið hér: www.teamlorio.net/flash.php og farið svo í “Theoden Horsemaster”. Alger snilld :) Kv. StingerS

Deiglugreinar eru vinsælastar (11 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég held að það fari nú ekki framhjá mörgum að greinar á deiglunni fá alltaf lang flest svör. Þetta er útaf því að það er alltaf lang mesta rifrildið á deiglunni og til þess að sanna það get ég komið með ansi skemmtilega niðurstöðu sem ég var að leika mér að komast að. Greinin “Trú” sem að var send inn fyrir svona 3 vikum held ég fékk heil 400 álit. Ég fór aðeins í gegnum hana og sá að greinin sjálf fékk ekki nema 29 svör en öll hin 371 álitin eru svör við öðrum svörum. Svarið er semsagt að...

Deportivo komið í gang? (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 1 mánuði
Það lýtur þannig út og þeir eru búnir að spila geðveikt vel í byrjun þessa árs. Unnu Real Madrid í gær. Held það hafi verið 2-0 en ég hætti að horfa þegar það voru svona 15 mínútur eftir þannig að ég er ekki viss. Real Madrid eru líka alveg að detta niður. Það var talað um að Luxemburgo mundi rífa liðið upp sem að það leit líka út fyrir og þeir voru að vinna leik eftir leik en núna eru þeir búnir að tapa 2 leikjum í röð á móti Atl. Bilbao og La Corunia. Real eru reyndar með marga meidda...

Lehman!! (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 1 mánuði
Sem Chelsea fan þoli ég ekki Arsenal og er þess vegna mjög feginn að Arsenal sé með Lehman sem markvörð. Ég held það segi sig bara sjálft hvað ég er að segja!! Maðurinn er hryllilegur markvörður. Honum finnst alveg greinilega mjög gaman að hlaupa út á kolvitlausum tíma og sjá boltinn rúlla í markið fyrir aftann sig þegar hann stendur 20 metrum út úr markinu!! Kv. StingerS

Of löng bið (4 álit)

í Ljósmyndun fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég er mjög ánægður með myndavélina mína en það er í rauninni bara eitt lítið vandamál. Þegar ég tek mynd og ýti á takkann tekst myndin svona 2-3 sekúndum eftirá. Þetta er nokkuð pirrandi þegar ég er kannski að reyna að ná einhverjum augmablikum sem að er bara hægt að ná á sekúndunni. Þetta er ekki svona á gömlu myndavélinni minni en það er heldur ekki digital myndavél. Er þetta kannski bara ósköp venjulegur hlutur fyrir digital myndavélar eða? Kv. StingerS

Manager leikur (2 álit)

í Manager leikir fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég er búinn að vera notandi á síðu í svona 2 mánuði núna og er búinn að komast að því að þetta er geðveik síða. www.managerzone.com er síðan og þetta snýst einfaldlega útá það að þjálfa lið og keppa í deild. Maður byrjar á því að skrá sig og fær þá 2 vikna prufu á síðunni. Þá fær maður eitthvað lið og á að stilla því upp, þjálfa það og keppa í deild sem er með held ég 6 eða 8 liðum í. Maður velur líka land þegar maður skráir sig og vegna þess að ég bý í Svíþjóð keppi ég í sænskri deild. Það...

Ráð (11 álit)

í Manager leikir fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég hef ekki spilað svona manager leik í nokkur ár, þegar ég átti Premier manager eða eitthvað þannig. Núna er ég orðinn ótrúlega spenntur fyrir að byrja á þessu aftur og mig langar að kaupa einhvern leik (ég er meira að segja þegar búinn að ákveða mikið sem ég ætla að gera í honum). Ég spyr því hvort að þið séuð ekki með ráð fyrir mig. Hvaða leik á ég að kaupa? Hvaða leikur er bestur? Kv. StingerS

Könnunin (0 álit)

í Ferðalög fyrir 19 árum, 1 mánuði
Einhvernveginn held ég að fólk hafi ekki séð alla þessa fossa sem eru nefndir þarna því að ég á erfitt með að trúa að fólk mundi annars finnast Gullfoss fallegasti foss Íslands!! Mér brá nokkuð!! :S Kv. StingerS

Leikirnir í gær (7 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 1 mánuði
Hvernig gat það flogið svona framhjá mér að fyrsta umferðin í 16 liða úrslitum Champions league voru í gær og kvöld? Ég var bara að fara heim til vinar míns og vissi ekkert af þessu. Sem betur fer eru þó aðal leikirnir í kvöld, þá hugsa ég auðvitað aðalega útí Barcelona - Chelsea. Skemmtileg úrslit í gær en ég hefði viljað sjá Juventus vinna á móti Real Madrid. Það skemmtilegasta var þó að sjá Bayern rúlla svona yfir Arsenal :) Bayern 3-1 Arsenal Liverpool 3-1 Leverkusen PSV 1-0 Monaco Real...

Ljótasta deildin (12 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég held að ég sé ekki einn á þeirri skoðun að enska deildin er sú allra ljótasta!! Ég horfið á helvíti skemmtilegt myndband í gær þar sem að var sýnt frá ljótum hlutum, óþarfa hlutum og algerum slagsmálum í ensku deildinni. Þetta gæti að sjálfsögðu verið ástæðan afhverju margir horfa á þessa deild en ég held mér við La liga :) Það var einhver sænskur expert að koma með sýna 3 verstu leikmenn Premier league. Semsagt þeir sem að gera mestu óþarfa hlutinu og svona var listinn: 1. Robbie Savage...

Inter - AC Milan (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 1 mánuði
Nú er einn stærsti leikur Serie A að koma. Inter á móti Milan sem gæti verið mjög erfiður fyrir Milan. Sérstaklega þá vegna þess að Shevchenko er ekki með útaf meiðslum. Svo eru Inter ennþá ekki búnir að tapa, sem er algjörlega ótrúlegt og í rauninni er það ástæðan afhverju ég held með Inter. Mig langar að sjá þá komast í gegnum tímabilið án taps :) Hvernig fer þetta annars? Hvað segiði?? Kv. StingerS

Smá spurning (7 álit)

í Rómantík fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég er að fara að senda bréf til mjög góðrar vinkonu minnar sem býr í Þýskalandi. Við erum ekki saman en ég er mjög ástfanginn af henni. Hún virðist líka soldið skotin í mér. Ég vona það allavegana!! Hún sendi mér sko bréf um daginn og þar skrifaði hún sko Lieber ***** (segi ekki hvað ég heiti :)) eða Kæri ***** og svo teiknaði hún hjarta. Hún teiknaði líka hjarta í endanum á bréfinu, hjá undirskriftinni sinni. Þessi spurning gæti verið soldið asnaleg en er þetta bara einhver svona...

Spænska landsliðið (15 álit)

í Knattspyrna fyrir 19 árum, 1 mánuði
Víst að ég kom með mitt drauma brasilíska landslið þá ákvað ég að koma líka með spænska landsliðið eins og ég mundi vilja hafa það: ——–Torres——Villa——— ———————————- –Luque—————-Morientes– ———————————- ——Xabi Alonso—-Xavi——— ———————————- Bravo————————Puyol ———————————- ——Helguera——Juanito——- ———————————- ————–Valdes————– Bekkur: Casillas Raúl Baraja Valerón Marchena Held að þetta mundi virka svona ágætlega :) Kv. StingerS
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok