Já, ég held að Barcelona séu alveg öruggir með La liga sigurinn. Ekki bara það að núna þegar þeir eru dottnir úr Champions league eiga þeir eftir að einbeita sér að La liga og engu öðru heldur er það líka útaf því að Real Madrid eru núna 11 stigum á eftir Barca eftir ósigurinn í suður Madrid á móti heimaliðinu Getafe sem að eru að standa sig vel. Þess má geta að Getafe er mjög ungt lið og er í rauninni bara með gamla Real Madrid og Atlético Madrid leikmenn. Leikurinn fór 2-1 en Santiago Solari má eiga það að hann skoraði flottasta markið í leiknum í endanum á leiknum fyrir Real Madrid. Þetta er eitt af flottustu mörkunum sem ég hef séð á þessu tímabili í La liga og hann á líka annað mark á þessu tímabili sem að kemst hátt á listann minn.
Ég held að ég geti auðveldlega sagt:
Til hamingju með titilinn Barcelona!!

Kv. StingerS