Í gær spiluðu Barcelona á móti hinu Barcelona liðinu í La liga, Espanyol. Barcelona litu kannski meira á þetta sem upphitun fyrir Chelsea - Barcelona á miðvikudaginn 8.mars.
Þrátt fyrir 0-0 í þessum leik fannst mér þetta ótrúlega skemmtilegur leikur. Deco var í einhverju fjöri og var á fullu að klobba alla og gera einhverskonar Ronaldinho brögð. Barcelona voru með öll færin og ég held að leikurinn hafi farið 15-1 í möguleikum. Menn leiksins að mínu mati voru Ronaldinho sem að hefur fengið sér eitthvað hressilegt í hálfleik því hann spilaði ótrúlega vel í seinni hálfleik og svo auðvitað Espanyol markvörðurinn Kameni sem kemur frá Kamerún og varði ótrúlega vel og fallega. Ég varð algjörlega sjokkeraður og Espanyol mega þakka honum fyrir 0-0 en ekki 5-0.
Skemmtilegur leikur sem hjálpaði Real Madrid og gerði Frank Riijkard soldið reiðann!!

Kv. StingerS