Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Steinninn
Steinninn Notandi síðan fyrir 19 árum, 6 mánuðum 39 ára karlmaður
74 stig

Re: Kaupi íslenskar VHS spólur

í Kvikmyndir fyrir 11 árum, 3 mánuðum
PS: Ef hún er til á DVD þá er mjög ólíklegt að ég kaupi hana. Bætt við fyrir 11 árum, 3 mánuðum:Nema Sódóma Reykjavík í pappírshulstri frá SS, væri til í að eiga hana :)

Re: Hvernig kemur maður í veg fyrir truflanir frá GSM símum

í Hljóðvinnsla fyrir 12 árum, 11 mánuðum
Ég er með kassettutæki sem tengist með USB snúru í PC fartölvu. Ég er líka að nota venjulega hljóðsnúru sem tengist í Sony tökuvél.

Re: Ukulele kennsla á íslandi??????

í Músík almennt fyrir 13 árum
Ég skil vel hvað þú átt við. Ég keypti mér ukulele fyrir nokkrum dögum og finnst stundum vanta að eitthver segi mér hvort ég sé að gera rétt eða ekki. TD fékk ég oft ekki nægilega tært hljóð úr ukuleleinu, hélt kannski að ég hafi ekki keypt nægilega gott hljóðfæri, en spurði bróður minn og hann var fljótur að sjá að ég var ekki að hitta nægilega vel á nótuna. Svona smáatriði sem maður áttar sig oft ekki sjálfur á. Svo var ég að lesa að réttara sé að plokka strengina heldur en að slá þá eins...

Re: Bjargaðu fjölskylduupptökunum

í Börnin okkar fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Við erum ennþá með fullt af góðum afsláttum. Kíktu við :)

Re: DVD MYNDIR TIL SÖLU ÓDÝRT :)

í Kvikmyndir fyrir 13 árum, 4 mánuðum
Er til í þessar: Dances with Wolves og See no evil,

Re: vantar upptökumann fyrir brúðkaupið mitt....

í Kvikmyndagerð fyrir 14 árum, 1 mánuði
prufaðu info@gagnvirkni.is

Re: Trú VS Vísindi

í Tilveran fyrir 14 árum, 2 mánuðum
Jæja, við getum allavega verið sammála um að vera ósammála.

Re: Trú VS Vísindi

í Tilveran fyrir 14 árum, 2 mánuðum
en það þýðir ekki að “materialism” sé endilega “science without religion” Þetta er gott dæmi um að köttur er spendýr en spendýr er ekki endilega köttu

Re: Trú VS Vísindi

í Tilveran fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Það fer náttúrulega eftir því hvernig þú skilur orðin. Ég skil til dæmis orðin “andlega sinnaður” sem svo að það sé maður sem er annt um fjölskyldulíf. Hvort sem það sé af yfirnáttúrulegum ástæðum eða ekki skiptir ekki máli. Það er til fólk sem er bara sama um peninga, hluti sem þeir eiga, völd og annað sem ég kalla efnislegt. Ég skil alveg hvert þú ert að fara, ég bara skil hugtökin efnislegt og andlegt öðruvísi en þú.

Re: Trú VS Vísindi

í Tilveran fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Of mikil efnishyggja fellst til dæmis í því að hugsa ekkert um fjölskyldu, ást, hamingju og aðra andlega hluti

Re: Trú VS Vísindi

í Tilveran fyrir 14 árum, 3 mánuðum
Þetta er mjög flott grein. Sammála mjög mörgu í henni. Bahá'u'lláh sagði sagði eitthvað á þessa leið: “Science without religion is materialism—religion without science is superstition. ”

Re: Á eitthver

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 4 mánuðum
Má ég spurja hvaða mynd þú ert að gera

Re: Laugarásvideó á Facebook

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 6 mánuðum
Það er búið að safna 50.000kr til styrktar uppbyggingu á safninu. Stefnt er á að ná 200.000 kr.

Re: Laugarásvideo brann í nótt.

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Nákvæmlega. Það eina sem eftir er af safninu eru þær myndir sem voru úti. Endilega skilið þeim. Sé eftir að hafa ekki verið með neina mynd heima hjá mér, en tja, ég bara gat ekki séð þetta fyrir.

Re: Stærð myndar til að senda inn.

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Þetta fer náttúrulega allt eftir því hvernig forit þú ert með. Eru með makka eða PC, photoshop eða iPhoto eða hvað?

Re: Þýðandi angels and demons

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Var ekki líka eitthvað “My father died two weeks ago” var þýtt “Faðir minn dó fyrir tvem árum”.

Re: 1994

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Ég ætlaði einmitt líka að segja 1999.

Re: Draumalandið

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Hún er ágæt, en ekkert skilduáhorf.

Re: óvissuferðin í sambíóin á mrg

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Þetta var Star Trek, var það ekki nokkuð augljóst, stutt í hana. Ekki fara þeir að sýna Up, printið er ekki einu sinni komið til landsins.

Re: Tímatal stjörnustríðs

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Hvernig nenniru að svara spjalli sem þú hefur engann áhuga á? Allavega, mér finnst þetta skemmtileg pæling og finnst mjög skrítið að Lucas hafi haft þetta með í myndinni. Mér þætti miklu eðlilegra ef það hefði enginn talað um nein tímatöl og þannig getur hver sem er fyllt upp í eiðurnar sjálfur.

Re: Myndir sem fólk á að vera búið að sjá?

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Mér er hugsað til The Game sem hafði mikil áhrif á mig þegar ég sá hana, þótt það hafi bara verið einu sinni (var í tíunda bekk). Sá hana aftur löngu síðar, alveg mögnuð.

Re: Jackie Brown (Quentin Tarantino-rýni)

í Kvikmyndir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Fínasta gagnrýni. Ekki alveg sammála, mér finnst þessi mynd klassík. En hey, hvar færðu út að hún sé bönnuð fyrir dóp, ofbeldi, nekt og blótsiði? Er það ekki bandaríska aldurstakmarkið. Og þá ætti það að vera R rated. Bara pæla.

Re: Hvar fæ ég Reykjavík Rotterdam?

í Kvikmyndir fyrir 15 árum
Hún er ekki einu sinni komin út á DVD

Re: Twilight DVD.

í Kvikmyndir fyrir 15 árum
Þú getur ábyggilega fengið hana í 2001 á hverfisgötu.

Re: sæl

í Kvikmyndir fyrir 15 árum
Það er að koma út mynd í apríl sem heitir Dragonball. http://kvikmyndir.is/KvikmyndirMovie/entry/movieid/4656 Hvernig væri nú að láta þráðinn heita eitthvað annað en ‘sæl’. Gefa manni aðeins betri hugmynd um hvað þráðurinn er um. td ‘hvað fannst ykkur um dragonball’.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok