Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Vantar gott DVD Encode forrit! (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 7 mánuðum
Ég er alveg að verða grænn á þessum DVD Encode'urum sem eru til þarna úti; annaðhvort er þetta alltof tæknilegt og ömurlegt í útliti eða þá að þetta er mjög einfalt en bara virkar ekki sjitt! Ég hef verið að nota Xmpeg en það virkar bara svona af og til; virkar ef EKKERT annað er í gangi í tölvunni, en get samt ekki stillt á 2 Passses. Svo verður þetta enn flóknara ef maður vill hafa AC3 hljóð inní með þessu. Hafið þið einhverja góða reynslu af einhverjum forritum? Hef prufað FlaskMPEG...

Hverjir selja Ibanez? (12 álit)

í Hljóðfæri fyrir 19 árum, 10 mánuðum
Hverjir hérna heima á Klakanum selja eiginlega Ibanez, fyrir utan Hljóðfærahúsið? Þeir eru svo seinir til að svara e-mailum og ég finn hvergi annarsstaðar á netinu aðra hljóðfæraverzlun sem selur slíka gítara. Ég veit ekki einu sinni hversu mikið úrval af Ibanez þeir hafa þarna í Hljóðfærahúsinu. Ég veit að þeir selja JS100 á 109.000 með tösku, en ég er að leita líka að JS2000, DMM1 (Malakian Signature) eða þá ICX120 sem er eiginlega alveg eins. Er þetta eitthvað vesen?

Sigur Rós tónleikar? (1 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Er eitthvað vitað hvort að Sigur Rós muni halda tónleika hér heima á næstunni, eða í vetur?

Au-pair í gegnum smáauglýsingar (?) (1 álit)

í Ferðalög fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég póstaði fyrir skömmu kork um au-pair á Íslandi, varðandi au-pair samtök o.s.frv. Það virtist ekki vera bera neinn árangur, svo ég auglýsti í blaðinu. Viti menn, nokkrum dögum síðar fékk ég hringingu og er nokkuð ákveðið að þetta gangi upp. En núna veit ég hinsvegar ekki hvert framhaldið er, varðandi pappírsvinnu, landvistarleyfi, hvort ég eigi að hafa samband við au-pair samtök hér… Er þetta ekki meira samningur á milli þessara tveggja einstaklingu? Þetta er semsagt fyrir...

Skilgreinið "ást" (7 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fólk hefur ýmsar kenningar og hugmyndir um ást, og skilgreina hana á mismunandi vegu. Ég vildi gjarnan fá álit ykkar; stutt og hnitmiðuð skilgreining á hugtakinu “ást”. Gjörið þið svo vel…

Hjálp, au-pair á Íslandi! (5 álit)

í Ferðalög fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þetta er meira fyrirspurn heldur en grein, en þannig er mál með vexti að ég er nýkominn til landsins eftir rúmar tvær vikur í Japan. Þar hitti ég stelpu (sem ég var búinn að vera í sambandi við lengi yfir netið) sem er að klára nám sitt þar (í Osaka) í september, en hún hefur mikinn áhuga á að komast til Íslands sem au-pair. Ég hef aðeins verið að skoða þennan au-pair heim hérna á Íslandi, en það virðist ekki vera úr miklu að moða. Hún vil vera hérna frá miðjum október til miðs febrúar,...

Playstation 2 DVD vesen (3 álit)

í Leikjatölvur fyrir 22 árum
Jæja, PS2in mín hefur verið svona frá því að ég keypti hana. Á sumum DVD diskum sem ég spila í henni fer hún að ‘stalla’, skippar áfram og í verstu tilfellum frýs hún. Þetta hefur, að mig minnir, einungis komið fyrir diska með Region 2, og þetta er farið að vera virkilega pirrandi. Ég gerði ekki neitt í þessu í fyrstu vegna þess að ég var ekki viss um hvort þetta væri bara diskurinn eða eitthvað, en ég er nokkuð viss núna um að þetta eru ekki diskarnir. En hvernig er þetta, á Playstation 2...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok