Jæja, PS2in mín hefur verið svona frá því að ég keypti hana. Á sumum DVD diskum sem ég spila í henni fer hún að ‘stalla’, skippar áfram og í verstu tilfellum frýs hún. Þetta hefur, að mig minnir, einungis komið fyrir diska með Region 2, og þetta er farið að vera virkilega pirrandi. Ég gerði ekki neitt í þessu í fyrstu vegna þess að ég var ekki viss um hvort þetta væri bara diskurinn eða eitthvað, en ég er nokkuð viss núna um að þetta eru ekki diskarnir. En hvernig er þetta, á Playstation 2 sér einhverja sögu varðandi þetta, eða er þetta bara galli í eintakinu mínu?<br><br>“Nihongo-ga sukoshi wakarimasu”