Square, höfundar leikja eins og Final Fantasy seríunnar, Chrono Trigger, Vagrant Story og margra annarra, og Enix, sem þekktir eru fyrir Dragon Quest og Soul Blazer leikina auk fleiri, tilkynntu mánudaginn 25. nóvember að fyrirtækin tvö munu sameinast. Enix féllst á að kaupa Square fyrir ¥93.2 billjón yen ($764 milljónir dollara) og tryggði þannig sameiningu fyrirtækjanna. Nýja fyrirtækið mun bera heitið Square Enix og mun taka til starfa í apríl 2003. Yasuhiro Fukushima, sem er formaður...