Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Rebekka
Rebekka Notandi frá fornöld 50 ára kvenmaður
1.244 stig
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.

Suða (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Stef úr blautum draumi líða mér fyrir sjónum Rauðir lokkar, spenntir vöðvar glitrandi dropar á auga og á vörum Dögg rennir sér niður bratta öxl svigar niður og sólin kemur upp með sprengingu í stormi á tindinum.

Án allrar tilgerðar. (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þegar dimm og drambsöm augu elta mig uppi og negla mig að veggjum veit ég ekki hvað skal segja. Þegar klofnar tungur kítla hrímaðar hláturtaugar verður hjartað að steini í brjósti mér. Krafsandi beinaberar krumlurnar benda miskunarlaust á mig og æpa: ÞÚ ERT REBEKKA. Og þá verð ég að finna mér aðra holu að skríða í.

About a girl. (7 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Elsku ljúfan. Mundu að ég elska þig. Alla daga og nætur. Og þegar ég græt köldum tárum mínum, eru það tár þunglyndis og kvíða. Þín vegna skal ég reyna að þrauka.

Flæði. (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Hringur á fingri glingur sem sindrar Angan af yndi löngun sem lamar Engin er ungur lengur en langar Myndir sem hanga og söngur sem klingir vekja í brjósti angurvær þyngsli.

Malboro 100's (15 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég er að drepa mig. Hægt og hægt fjarar lífið úr limum mínum. Ég tel mínúturnar, sjö plús sjö plús sjö… Ég dreg eitrið hægt inn nýt hverrar sekúntu lygni aftur augunum og læt mig dreyma. Ég get ekki hugsað mér betri leið til að fara.

Kjassi jólabarn. (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Kærastinn minn hataði jólin. Við vorum búin að búa saman í nokkra mánuði og jólin, okkar fyrstu jól saman voru farin að nálgast. Þegar fyrsti snjór vetrarins féll niður úr hvítum skýjum og lagði mjúka sæng yfir sjúskaða jörðina fylltist ég þessum nett-geðveika jólafílingi sem keyrir mann fram úr sjálfum sér á hverju ári. Ég tók til við að baka og þrífa og allt annað sem verður að gera svo jólin geti verið viss um að þau hafi ekki farið húsavillt. Kvöld eitt sátum við dóttir mín og teiknuðum...

Kók. (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eins og kóksletta á hvítum flísum Klístraðist þú á mig. Það er alveg sama hvaða efni ég reyni, ég virðist sitja uppi með þennan viðbjóð sem ég einu sinni gat ekki lifað án.

Yfirbót (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ath. að þetta ljóð er ekki í neinu samhengi við annað sem ég hef sett hér inn á Huga…. Hýddu mig. Hótaðu mér. Hataðu mig. Ég á það hvort sem er skilið. Lemdu mig. Ljúgðu að mér. Láttu mér blæða. Þig langan hvort sem er til þess. Því sál mín er frosin og ég þrái að gráta.

Almennt um barnaskap. (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég fæ venjulega ekki útrás fyrir geðvonsku á þennan hátt en þetta fæddist bara…..Þetta er tileinkað ónefndum einstaklingi sem hefur verið að tjá sig hérna á Huga:( Rotnaðu ræfillinn, andlausi auminginn. Taktu nú þetta til þín: Lærðu að lesa nett, stafsettu stundum rétt. Meðtaktu þessi orð mín. Æfi þína alla mundu, orð mín sem þig hérna fundu: Guðsbarn ertu góði! Seinna finnur ást og yndi, smókingklæddur skreyttur bindi, svitnar yfir þessu ljóði. Þó svo þroskist seint og illt, skal vitsmunum...

Tré (3 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ligg í köldu rúmi og horfi á greinar trjánna dansa á rauðum gluggatjöldunum Finnst beinin bráðna Kjötið logna Andstutt Föl Rök Heit Sjúkleg

Við flugvöllinn (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Farinn frá mér drengurinn, hjá föður dvelur enn um sinn. Litli hnokkinn minn. Úr örmum mínum rifinn á braut, ástin mín stóra, sú örlög hlaut. Að glíma við slíka þraut. Vonarneisti þó sál mína skekur og vondar hugsanir burtu rekur. Trúin, sem dóttir mín vekur. Því góður Guð á mennina lítur, gætir að sálum og vonum sem þrýtur. Blessun hans, hjartað hlýtur.

Svo netta (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Er sólin gyllir snævi þakinn móinn og svörður þreyjar vetrardaga langa. Er yndi litlum húfuklæddum anga úti við, að hnoða kaldan snjóinn. Koma svo inn og kyssa mömmu sína, kökuilm úr lofti fylla vitin. Lítil hjörtu klippa rauð á litin, langa músastiga flétta fína. Syngja gömul kvæði, sorgum gleyma. Setja litla skóinn út í glugga. Með bros á vör, svo leggjast hrein í ból. Í djúpum svefni englakríli dreyma, dapra þanka, alla kann að hugga: Jafnan aftur koma blessuð jólin.

Ljóð handa langveikum börnum (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Á meðan vörurnar vaxa í hillum stórmarkaða Vaxa skuldir barnanna á Reyðarfirði En hvað með það? Ef við færum nú öll saman á fjórhjóladrifsjeppum Og týndum fjallagrös handa blessuðum börnunum á Reyðarfirði Yrðu þau ekki glöð? Jú. Þau myndu gráta af gleði.

Augun mín (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Augun mín eru opin hverja stund eru þau opin og ég óska að ég gæti sofnað. Mig verkjar eins og einhver hafi rekið mig í gegn með stórum sting Það er margt sem angrar Söknuður og sorg En fyrst og fremst Tómu augun mín

Túlkun 7-9-13 (2 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hún bíður og vonar og fær Hann kemur og kemur og fer Hún biður og vonar að dag einn muni hann bíða eftir að hún komi.

Fiðrildi (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Orðin flögra eins og fiðrildi um höfuð mitt. Ég fanga þau og festi á kork með prjóni. Í morgunsólinni má sjá rykkorn í fölnuðum litum vængjanna. Þau hafa enga merkingu. Þau eru dauð og fljúga aldrei aftur.

Blóð (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Fljótið rennur í gegn um mig Skolar burt úrgangi sem safnast fyrir og stíflar mig Á vorin flýtur það yfir bakka sína og reynir að gleypa allt og alla En sólin og fuglarnir syngja svo dátt að fljótið skammast sín og rennur til hafs á ný.

Af öllum mætti (0 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Ég er að rembast við að yrkja en finn ekki rím nema kirkja og kyrkja Það er ekkert gaman að vera skáld þegar hæfileikar eru ekki til og viljinn ber mann ekki einusinni hálfa leið og betra er að drepast en duga ég lýsi eftir samkennd á Huga.

Undir stuðlabergi. (1 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Komdu og kysstu mig ljúfur leiktu við lækinn og blómin boðaðu blíðu mér einni alein við unnumst saman Farðu svo fljótur í burtu banaðu blæðandi sálu segðu að sumarið víki varlega á vængjum burt svífi Eigðu þér ágæta æfi undrastu ástina mína mundu mig, lækinn og blómin bænir og blæðandi hjarta.

Örlagarík ákvörðun. Framhaldssaga....? (2 álit)

í Smásögur fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Hún hafði ömun af starfi sínu sem léttastúlka í stóru matvöruversluninni. Hana dreymdi um starf þar sem menntun hennar og ótvíræðir hæfileikar í mannlegum samskiptum kæmu að einhverju gagni. Dag eftir dag sat hún og blaðaði í gegnum auglýsingar dagblaðanna en sá ekkert sem vakti áhuga hennar. Hún bjó ein í risíbúð og hafði engan til þess að ræða við, annan en köttinn sinn Pandóru. Það gerðist svo dag einn að örlaganornirnar fóru í pásu og einhver púki komst í vefinn þeirra… Kannski var þetta...

Læstar dyr. (4 álit)

í Ljóð fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Dyrnar að Hamingjunni eru læstar. Og hamingjan er daglegt amstur, regla, síendurteknar venjur okkar. Öryggi hinnar fastmótuðu leiðar, er staðfest með fyrirfram ákveðinni neyslu okkar á hugmyndum og efni. Ég kann ekki á lásinn en veit að minn lykill er geðdeifðarlyfið. Er einhversstaðar einhver sem kann að pikka upp lása…..?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok