Stef úr blautum draumi
líða mér fyrir sjónum

Rauðir lokkar, spenntir vöðvar
glitrandi dropar
á auga og á vörum

Dögg rennir sér niður bratta öxl
svigar niður
og sólin kemur upp
með sprengingu
í stormi
á tindinum.
Í meinum var hún fegurst allra systra minna. Rebekka 2002.