Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Pirrandi borð (11 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvaða borð fara mest í taugarnar á ykkur í BroodWar eða Starcraft (þó að þau séu nú eiginlega öll svo létt) ? Er eitthvað borð sem þið eigið alltaf í vandræðum með þrátt fyrir að þið séuð að spila það í annað eða þriðja skiptið ? Sjálfur verð ég að segja að lokaborðið í Protoss í BroodWar (þ.e. borðið þar sem maður á að koma zeratul og artanis inn í templið og vernda það) er alltaf jafn erfitt, sama hversu oft ég spila það. Það koma alltaf þvílíkt mikið af köllum í lokin og eyðileggja templið.

Þegar tölvan verður klikkuð... (6 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hafið þið stundum lent í því þegar þið eruð að spila Play Custom á móti nokkrum comp-players að annað compið hafi einfaldlega sturlast og byrjað að gera stórfurðulega hluti ? Lítið á þessi screenshot: www.simnet.is/hringur/scout.jpg www.simnet.is/hringur/archon.jpg

Myndir sem þú elskar eða hatar! (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Kvikmyndir eru yfirleitt þess eðlis að sumum finnst einhver tiltekin mynd ömurleg, öðrum finnst hún lala, enn öðrum góð og hinum finnst hún frábær. Svo koma myndir sem klýfur áhorfendur nánast í tvo hópa: þá sem hata myndina eða finnst hún frábær. Hvað er með þessar myndir sem gerir að þetta verður svona og hvaða myndir getið þið nefnt sem eru svona? Sjálfur get ég nefnt The Cell, Dancer in the Dark og Cube…

Gjörsamlega sammála. (1 álit)

í Hugi fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvernig fær maður svo athygli vefstjórans í svona málum ? Ég væri t.d. alveg til í að vera stjórnandi þessa áhugamáls. Ratatoskur Allt um Tolkien og LOTR: http://www.simnet.is/hringu

Artanis-klikk! (2 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hafið þið prófað að klikka á Artanis (sem scout) í borðinu með power generators ? Svona svarar hann: “Explain this odd behavior” “Stop poking me” “What do I look like, an Orc ?” “This is not Warcraft in space” “It' much more sophisticted” "I know it's not 3D! Alltaf gaman að svona.

Cerebretes og stimpack! (3 álit)

í Blizzard leikir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Tvær spurningar: Það er oft tuggið fram og til baka hjá Zeratul, Tassadar og Kerrigan í SC og BW að…“Cerebretes can only be killed by Dark Templar energy”. Ókei, samþykki það, en hvernig gátu þá Terranar drepið heila 3 í lokamission Terran í Broodwar ? Þ.e. áður en þeir sentu medic á Overmindið. Stimpack Þetta hljómar eins og ég sé alger byrjandi í leiknum en ég hef einfaldlega aldrei haft upp á þessu. Er stimpack tímabundið eða hvað ? Ef ekki, er það þá ekki snilldarhugmynd að stimpacka...

Vísindaskáldsagnamyndir (78 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvaða vísindaskáldsagnamyndum mælið þið með? Mig langar gjarnan að fá að vita það, það er nefnilega mjög erfitt að finna einhverjar almennilegar. Það er líka mjög erfitt að búa til almennilegar sci-fi myndir. Síðast leigði ég Pitch Black og var ekkert sérlega hrifinn. Þetta var svo idíótískt þegar ein persónan var étin hver af öðrum og öllum virtist standa á sama. Ég sá einnig Event Horizon í fyrsta skipti um daginn og þó að þetta sé svo sem ágæt mynd þá vantar aðeins betri söguþráð. Verst...

Hvernig aligna ég javascriptið? (4 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þess skal geta að ég kann mjög lítið í HTML svo verið þolinmóðir! Ég fann eitt sniðugt javascript á netinu sem ég ætla að hafa á heimasíðunni minni. Þetta er niðurteljari (sem telur niður á einhvern tiltekinn dag) í litlum kassa sem kemur á síðunni! Javascriptið virkar alveg fullkomlega, en hvernig fæ ég þennan kassa til þess að færa sig yfir á miðju ? Scriptið byrjar svona: form name=“count” input type=“text” size=“40” name=“count2” /form></p script /* Count down until any date script- By...

Hvernig aligna ég javascriptið ? (2 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Þess skal geta að ég kann mjög lítið í HTML svo verið þolinmóðir! Ég fann eitt sniðugt javascript á netinu sem ég ætla að hafa á heimasíðunni minni. Þetta er niðurteljari (sem telur niður á einhvern tiltekinn dag) í litlum kassa sem kemur á síðunni! Javascriptið virkar alveg fullkomlega, en hvernig fæ ég þennan kassa til þess að færa sig yfir á miðju ? Scriptið byrjar svona: <form name=“count”> <input type=“text” size=“40” name=“count2”> </form></p> <script> /* Count down until any date...

Lord of the Rings (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mig langar bara að benda öllum á vefsíðu mína um Lord of the Rings. Þar er að finna helling af upplýsingum um kvikmyndirnar, tónlistina, leikarana, tæknibrellur, breytingar á sögu, myndasafn o.fl. Og allt á íslensku!! Endilega lítið inn: www.simnet.is/hringur

Lord of the Rings (8 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mig langar bara til þess að benda ykkur á vefsíðuna mína um Lord of the Rings! Á henni eru ítarlegar upplýsingar um myndina, leikarana, breytingar, flott myndasafn, tónlistina, tæknibrellur o.fl. Allt á íslensku!! Endilega lítið inn á hana: http://www.simnet.is/hringur/

Lord of the Rings! (0 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Mig langar bara að benda þeim á sem hafa áhuga á hinum komandi Lord of the Rings-kvikmyndum að vefsíðan mín www.simnet.is/hringur er tilbúin! Þar er að finna ýmsar upplýsingar um bækur Tolkiens og auðvitað það sem skiptir máli: ítarlegar upplýsingar um kvikmyndirnar! Upplýsingar um leikarana, breytingar í myndinni, gott myndasafn, linkar í báða trailerana og margt fleira! www.simnet.is/hringu

Söguþráður! (2 álit)

í Blizzard leikir fyrir 23 árum
Ég hef nú ekki spilað Warcraft 2 mikið en talsvert af Starcraft og BroodWar! Hvernig verður þetta; verður skemmtilegur söguþráður líkt og í Starcraft? Mér fannst söguþráðurinn það besta við Starcraft: Kerrigan fyrir og eftir, Raynor, vantrú Aldaris á Tassadar og Zeratul, o.s.frv.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok