Hvaða borð fara mest í taugarnar á ykkur í BroodWar eða
Starcraft (þó að þau séu nú eiginlega öll svo létt) ?
Er eitthvað borð sem þið eigið alltaf í vandræðum með þrátt
fyrir að þið séuð að spila það í annað eða þriðja skiptið ?

Sjálfur verð ég að segja að lokaborðið í Protoss í BroodWar
(þ.e. borðið þar sem maður á að koma zeratul og artanis inn í
templið og vernda það) er alltaf jafn erfitt, sama hversu oft ég
spila það. Það koma alltaf þvílíkt mikið af köllum í lokin og
eyðileggja templið.