… Lee Westwood með að hafa loksins komist í gegnum niðurskurð!

Westwood er að keppa á HP Classic á US PGA mótaröðinni og er -11 undir eftir 3 hringi og í 26. sæti. Westwood hefur átt mjög slakt ár á Evrópsku mótaröðinni og kannski er best að hann haldi sig fyrir Vestan haf?

Aftur á móti heldur David Duval áfram að gera í buxurnar. Í sama móti lék hann á 74 - 75 og náði ekki niðurskurðinum. Duval endaði í 149. sæti af 154 keppendum!

Hvað er að gerast hjá Duval?
——————-