Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ummæli Sea Shepherd um íslendinga!

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Já, gæti verið. Sé svosem ekki hvað er rangt við að drepa seli eða kópa. Á reyndar alveg eftir að smakka þá.

Re: Byrjandi!

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Já. Ég hef nú svosem ekki tekið eftir því. Hef tekið myndir á hana sem ég er alveg nokkuð sáttur með. Myndi posta nokkrum hérna ef myalbum.is væri ekki niðri.

Re: Baldurs Gate 2 - BÓKINN

í Tölvuhlutverkaleikir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Langt, rautt hár er bara nett. :p Minsc er bara nettur.

Re: Byrjandi!

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Er “EF 75-300 mm” þá líka drasl eða? :/

Re: Byrjandi!

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Í gömlu ó-stafrænu vélunum jú. Í digital vélum lendir myndin á minni fleti (eða var það stærri?) og þessvegna er 50 mm sami “aðdráttur” og mannsaugað sér í.

Re: Náttúra Íslands

í Ljósmyndun fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Er það rétt hjá mér að þú hafir lýst upp jörðina eða skipt layernum einhvernvegin? Flott mynd, flott vinnsla.

Re: Trú

í Heimspeki fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Því er trúleysi, einnig trú eins og trú í hefðbundnum skilningi. Hérna held ég að við verðum að skilgreina trúarlegt trúleysi frá trúlausu trúleysi. Getum t.d. skoðað muninn á eftirfarandi setningum: a)Ég trúi því að Guð sé ekki til og b)Ég trú því ekki að Guð sé til. Ég vil meina að það sé merkingarlegur munur á þessum setningum. Setning a gefur til kynna trú, setning b gefur til kynna skort á trú, þó að báðar afstöðurnar séu gjarnan kallaðar ‘trúleysi’. Það vantar eiginlega einhver...

Re: Hvað er að hausnum í sumum mönnum?

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hitchiker's guide to the galaxy? “Man had always assumed that he was more intelligent than dolphins because he had achieved so much… the wheel, New York, wars, and so on, whilst all the dolphins had ever done was muck about in the water having a good time. But conversely the dolphins believed themselves to be more intelligent than man for precisely the same reasons.”

Re: Ummæli Sea Shepherd um íslendinga!

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Nú, hvalir eru bara ein af afurðum jarðarinnar sem er sjálfsagt að nýta sér, ekki síst þar sem hægt er að gera það án þess að ganga fram af jörðinni. Ég smakkaði hrefnu um daginn og verð bara að segja að hún var helvíti góð. Éta ekki einhverjir hvalir sömu fiska og við erum að veiða? Held að það sé bara win/win að veiða þá :D

Re: Ummæli Sea Shepherd um íslendinga!

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Þó að mér finnist hvalveiðar vera tímaskekkja Hvernig þá? :o Það væri alveg nett að fá kork, eða jafnvel grein, um það.

Re: Hvað er að hausnum í sumum mönnum?

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hahaha … hefurðu lesið h2g2? Þar er einmitt minnst á þetta, bara með ‘dolphins’. :D og já, það er aðeins fyndnara.

Re: Aldursmunur!!!

í Rómantík fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mér finnst það að honum skuli vera sama segja svolítið um hann og það eitt ætti að vera svolítið stór ‘mínus’ í kladdann. Ef við gefum okkur að hann sé alveg eðlilegur, þá ert þú barn miðað við hann. Þið eruð hvort á sínum stað í lífinu, eigið ekki samleið.

Re: Gaman í BJJ!!!

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég hef nú lagt það í vana minn að ljúga ekki að vinum mínum. (Nema kannski svona rétt áður en ég drep þá, og þá til að plata þá í einhverja gildru.) :D Nei, BJJ er flott.

Re: Thai Jitsu

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hahahahahaha! Allavega, ég sló þessu fyrst saman við “tai chi” þangað til ég las svarið hans Nekron, þá rifjaðist upp fyrir mér samhengið. Snilld … “lána mér tælending”.

Re: Talent Booster

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ertu að djóka?! Auðvitað er þetta til, sérðu ekki myndina? Ég er einmitt að selja minn gamla, svaraðu mér hérna ef þú hefur áhuga.

Re: snilld

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Þú ert gott dæmi um einhvern sem kann ekki íslensku. þegar það er hleypt

Re: Þitt næsta hljóðfæri?

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Fín spurning. Hef svosem ekki verið að spila neitt af ráði þannig að ég hef ekki spáð of mikið í þessu. Annars hef ég ætlað að fá mér 12 strengja kassagítar í svolítinn tíma, og kassagítar sem hefur ekki svona ‘warm’ hljóm og sá sem ég á núna (sá sem ég var að brjóta :/ (sjá myndir)). Svo þyrfti maður nú að fá sér magnara fyrir rafmagnsgítarinn.

Re: Breytum spurningakeppninni

í Vísindi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Hér er náttúrulega höfðað til heiðarleika hvers og eins, en það virðist ekki virka alltaf :/ Ég fatta ekki manneskju sem sér í alvörunni fram á að það gæti verið sniðugt að ‘svindla’ í spurningakeppni sem: a) Er á netinu b) Er undir nafnleynd c) Skiptir nákvæmlega engu máli fyrir “frama” þinn á netinu d) Er varla keppni, meira svona eins og smá skemmtun

Re: Trú

í Heimspeki fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Yup. Annars finnst mér ekki fallegt hjá þér að segja að Aristóteles hafi verið latur, hann var óttalega klár kallinn og hann gerði ýmislegt, þó að hann hafi kannski ekki fundið upp lotukerfið og náð að einangra öll efnin sem hann vantaði í það.

Re: Systema

í Bardagaíþróttir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég hef það nú eftir merkum manni að maður skuli aldrei taka mark á ófullum íslending.

Re: Vísindabrandarar

í Vísindi fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Haha, já. “Þegar ég gaf í, fauk kortið mitt út um gluggann.” Margir möguleikar með Heisenberg. :P Fullt af þessu hérna: http://www.xs4all.nl/~jcdverha/scijokes/

Re: Hreint vatn komið í höfn

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mér líður meira eins og þeir séu spasstískir.

Re: IQ test.. :D

í Deiglan fyrir 18 árum, 7 mánuðum
133 djöfulsins kjaftæði er þetta. Eins og hinir sögðu :-)

Re: Ónákvæmni í Bibíunni.

í Dulspeki fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég held að þú ættir kannski að leggja aðeins meira í þessi skrif. :-) Annar er þetta rétt hjá þér. Eins og einhver sagði: áður fyrr var fólk trúað útaf kraftaverkum, núna er það kraftaverk að fólk skuli vera trúað.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok