Jæja ætla að segja ykkur stutta sögu. Reyndar ekki saga sem tengist mér nema það var félagi minn sem lenti í þessu..

Allaveganna hann var fyrir hálfu ári eitthvað að spjalla við stelpu sem hann hafði allveg þekkt lengi. Hún var eitthvað að tala við hann og segja honum að hún væri allveg til í að vera með honum og þannig eitthvað en hún ætti bara þegar kærasta en var samt að já lýsa því hvað hún væri allveg til í að vera með honum. Jæja svo líður allaveganna hálft ár og þá hringir stelpan og segir, jæja ég er hætt mé kærastanum. Viltu ekki hitta mig og við förum að gera eitthvað saman. Hann svaraði bara og er ég mjög stoltur af honum: “Nei veistu ég nenni því ekki, þú sagðir mér fyrir meira en hálfu ári síðan að þú værir allveg til í að byrja með mér og eitthvað en svo um leið og þú hættir með kærastanum þínum þá ertu síðan til í allt og það er langt um liðið. Ef þú hefðir bara hætt með honum þá og byrjað með mér þá hefði þetta verið gott mál. Ég er enginn varakærasti”

Mjög sáttur við hann, núna er þessi stelpa fúl út í hann en só what… Mér finnst ragt að stelpum að reyna að verða sér út um “aukakærasta” ef hitt sambandið klikkar.

Bætt við 18. október 2006 - 17:52
Tek það fram að þessi stelpa er allveg skuggalega flott sko. Bara mjög sæt en þær geta bara ekki fengið allt útlitsins vegna.
Cinemeccanica