Eins og í öllum umræðum um tilgang sem við höfum farið útí áður, skulum við byrja á því að spá í því hvað “tilgangur” sé og hvernig hann sé ákvarðaður, áður en við förum að tala um hitt og þetta sé tilgangur einhvers. T.d. ef ég nota skóflu sem hamar, er það þá tilgangur skóflunnar? Geturðu bara notað tilgangsleysið sem tæki til að undirstrika tilgang einhvers sem er tilgangsmikið, og þar með verður það tilgangur þess?