Já, þú ert náttúrulega búin að skemma það með endalausu sjampói og svo hárnæringu til að gera það “eðlilegt” aftur, í staðinn fyrir að halda því bara eðlilegu. :-)
Shutter speed er í rauninni hve lengi myndavélin er “opin” fyrir því sem þú ert að taka mynd af. Ég held að þegar við tölum um timer séum við að tala um einhverja niðurtalningu áður en vélin smellir af. Skoðaðu þessa greina, getur eflaust lært margt af henni :)
Er yfirvinna eitthvað mikilvægari en önnur vinna?Hún er náttúrulega hafin yfir aðra vinnu, og er þar með mikilvægari. Svipað og yfirmaður eða yfirsjón.
Er virkilega ekki nóg af ríkinu og sveitarfélögum að skifta þeim skatti á milli sín? Tjah, miðað við ásigkomulag menntakerfisins, sjúkrakerfisins og eiginlega alls kerfisins held ég að þeir gætu enganvegin komist af með minni pening en þeir gera núna.
Mér líst alveg hræðilega vel á þessa hugmynd hjá þér. :-) sætta okkur við möguleika á ‘sársaukafullum’ návígisskotumMiðað við mína reynslu þá er þetta alls ekki jafn vont í hita leiksins. :D Lenti því sjálfur að verða skotfæralaus og þurfa að læðast aftan að óvin til að ‘drepa’ hann þannig (láta hann gefast upp til að hlífa honum við skoti úr ~20 cm fjarlægð), var að því loknu skotinn af vini hans á frekar stuttu færi. Adrenalín kicks ass!
Ekki nema ég hafi verið í rykbaði eða einhverju svoleiðis. Eins og ég sagði, þá hef ég gert það svona tvisvar síðustu 2-3 árin, man það samt ekki alveg. Þvæ það alltaf bara með vatni, einstaka sinnum nota ég hárnæringu.
Ég hef þvegið hárið mitt með sjampói svona tvisvar sinnum síðustu 3 árin, og það er geðveikt hlýðið og fínt. :-) (er sko með krullað/liðað hár vel niður á herðarblöð)
En enginn sem vill kaupa hann? :O Ég er nú enginn markaðsfræðingur og ég veit ekki hvað han kostar nýr, en ég hefði haldið að svona góður gítar, auk þess með pickup, á 30.000 væri ekki ósanngjarnt verð fyrir kaupendur.
Ég á við akkúrat þetta dæmi: ó - 1 = ó Þarna sé ég ekki betur en að það sé reiknað með ó sem tölu (annað en t.d. með x, vegna þess að maður segir ekki að x - 1 = x) Eða er ég kannski eitthvað að misskilja þetta? :) Það væri nefnilega bara betra.
Haha :-) Var nú að spila Soul calibur III, það eru ninjur í honum. Geta meiraðsegja spúð eldi. Annars er ég nú með MKIII fyrir PC hérna einhversstaðar …
Einmitt. Þetta er eins og svo margt annað þar sem það liggur beinlínis í augum uppi að fólk hefur alveg broslega rangt fyrir sér, en trúmenn loka bara augunum, setja puttana í eyrun og kyrja “lalalalalalla”. :)
Æðislegir gítarar. Á svipaðann þessum, held að minn sé s6+ eða eitthvað, en hann er single-cut og með aðeins flóknara rafkerfi. Snilldar gítarar, mæli með þeim. :-)
Ég mæli með því að þú “kynnist” einhverjum sölumanninum og áður en þú kaupir af honum tenginguna færðu hann til að “lofa” því að tengingin sé stöðug og hröð, svo ef það eru einhver vandamál þá hringiru bara og biður um samband við hann og færð hann til að mixa draslið. ;-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..