Mér finnst ég nú ekkert vera að hrauna yfir fólk á netinu. Er oftast ósköp kurteis nema þá kannski þegar ég rekst á fólk sem ég held að sé of heimskt til að þekkja muninn á móðgun og einhverju nafnorði.
Á drengurinn bara að halda áfram að vera á hverjum degi eins og hann er?Ekki eins og það séu bara tveir möguleikar í stöðunni og ég hafi útilokað annan.
Það verður kannski ekkert auðvelt fyrst þið eruð orðin þannig vinir að hún sé að halda ræður um alla gaurana sem hún reið um helgina yfir þér, en það gæti alveg verið mögulegt. Þú gefur það í skyn með því að byrja að reyna að láta hana fá áhuga á þér, ég efast um að það sé til einhver gullin formúla fyrir því, það fer eftir þínum og hennar persónuleika og eitthvað sem þú þarft eiginlega að vera ‘næmur’ fyrir.
Af hverju í andskotanum ætti maður að segja einhverri stelpu að maður sé hrifinn af henni? Held að viðbrögðin séu nokkurnvegin eins og hann lýsir hérna fyrir ofan mig. “Oj, creepy”. Það er ekki eins og hún ráðist á hann og þau deyji í faðmlögum. Fatta ekki hverju fólk er að vonast eftir með þessu.
Hmm… Ég held reyndar ekki. Þýska er germanskt mál á meðan latína er rómanskt. Þó að það sé kannski ekkert voðalega langt þar á milli þá hefði ég haldið að það væri í lengra lagi til að svona frasar bærust. Annars er þetta bara vangaveltur.
Það hefur líklega verið hlutlausasta könnun í sögu vísindanna. btw. ekki tala um að vísindin ‘sanni’ eitthvað. sjá: http://www.hugi.is/heimspeki/threads.php?page=view&contentId=4471787
Af hverju talarðu ekki um það við hann? Það kæmi mér á óvart ef þú myndir vakna einn daginn, eigandi geðveikt auðvelt með samskipti sem þér finnst erfið í dag. Þetta er æfing og æfingin skapar meistarann. Byrjaðu í dag ;)
Málið er að það er óhemju mikil orka sem þyrfti að fjarlægja til að kæla sjó sem er kannski 1 °c niður í 273,15°c, og það ekki á löngum tíma. Við erum að tala um alveg 274,15 kaloríur á HVERT GRAMM (það gerir ca. 4,2 * fleiri júl minnir mig).
Segi nú bara það sama við þig og ég sagði þegar þú skrifaðir þetta sem svar á einhverjum korki: Opnaðu augun. Það er fullt af frábærum strákum þarna í kringum þig. Kannski ertu bara ekki að leita á réttum stöðum? Það fara ekki allir strákar út á djammið og á sömu skemmtistaði og þú. Það reyna ekki allir strákar að hözzla þig, kannski ertu jafnvel að leita að týpunni sem hözzlar minna? Ég er allavega full viss um að vandamálið sé þín megin, ég veit að það er til fullt af frábærum strákum sem...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..