Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Freysi...?

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Svara spurningunni?

Re: Freysi...?

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Er það að koma fram í Kastljósinu að fela sig? Hann hefði auðveldlega getað sagt nei. Hver er svo þín skýring á því að þátturinn hans sé svona vinsæll? “Fólk er fífl”?

Re: Jólagjafir

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Alltaf þegar ég er spurður um hvað mig langi í jólagjöf hugsa ég pening en ég segi það aldrei.

Re: Freysi...?

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hann er ekki fluggáfaður, en ef greindarvísitala hans væri undir 30 gæti hann ekki lesið, og þá gæti hann varla sungið óperur ;)

Re: Forritið MessengerDiscovery :)

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég vara við þessu forriti, eftir nokkra daga byrja að koma popups upp úr engu og grunsamlegir processar fara að keyra í bakgrunninum.

Re: Freysi...?

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég hef aldrei rekist á þennan þátt hans en eftir að hafa séð þetta Kastljós hef ég hugsað mér að breyta því. Og að segja að allir með 30+ í greinarvísitölu geti varið sig er náttúrulega argasta vitleysa. Líttu til dæmis á Kristján Jóhannsson, hann hefði auðveldlega getað varist þessu og komið betur út úr öllu saman, en hann klúðraði því algjörlega.

Re: Tónlist við próflestur

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég nota bara tónlist ef ég læri nálægt tölvunni, þá lágt stillt, rólegt barrokk, til dæmis eftir Bach eða Vivaldi, rétt svo til að yfirgnæfa viftuhljóðið. Hraðari tónlist eða tónlist með textum truflar mig.

Re: Freysi...?

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Mér fannst hann koma mjög vel útúr þessu. Sést algjörlega að þessi maður er enginn hálfviti. http://servefir.ruv.is/dagskra/streaming/default.asp?channel=1&date=2004-12-02&file=4154511 Fyrir þá sem misstu af þessu

Re: Nokkrar upplýsingar varðandi Hive

í Netið fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég segi að þú vitir nákvæmlega ekkert um það.

Re: Alexander

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég er algerlega ósammála þér, mér fannst Troy hin besta skemmtun.

Re: Alexander

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Hvað var svona lélegt við Troy?

Re: Kristján Jóhannsson í Kastljósinu!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Orðum það bara þannig að það hafi verið þér til minnkunar.

Re: Stöðvum fávísi nútíma Sportveiða

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Góður punktur, hafði ekki hugsað þetta svona.

Re: Stöðvum fávísi nútíma Sportveiða

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
“Sportveiðar eru hvorugt .. þær eru Egó trip mannverunar sem hún tekur út á dýrum sem minna mega sín gagnvart skotvopnum og hágæða fullkomnum bogum og veiðistöngum - allt til að skemmta manninum.” Egó tripp hvað? Þú veltir þér uppúr mannhatri og staðalímyndum. Langflestir skotveiðimenn eru að þessu fyrir útivist, skemmtan og til að veiða í matinn og ég sé nákvæmlega ekkert að því. Þú mótmælir ekki til dæmis loðnuveiðum… Er loðnan eitthvað ómerkilegri en t.d. refir og rjúpur? Ættum við...

Re: Kristján Jóhannsson í Kastljósinu!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Frábært svar! Algerlega sammála.

Re: Whose Line is it Anyway

í Gamanþættir fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ágætis þættir jebb. Mér finnst samt dálítið veikt að leggja svona mikið uppúr því að þetta sé allt óæft, ég hef séð einn þátt og það er ekki möguleiki að þeir hafi ekki æft hann. Einn af grínistunum (svartur á hörund) átti að syngja lag á staðnum um einhverja konu, og það rímaði allt hjá honum :O

Re: Annað sjónarhorn á biblíuni. (Opnaðu augun)

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Endilega lestu hana.

Re: Annað sjónarhorn á biblíuni. (Opnaðu augun)

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
[ímyndið ykkur að þetta sé grænt]þetta virkar! =D

Re: Gjöld á sterku víni og tóbaki hækkuð um 7%

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Í mínum augum er verið að sækja aukatekjur á móti skattalækkununum. Er það ekki dálítið gegn stefnu Sjálfsstæðisflokksins að stýra svona neysluvenjum fólks með ríkisrekinni einokunarverslun og himinháum áfengissköttum?

Re: Mooruhhn

í Tilveran fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Flott framtak - góður leikur.

Re: Kristján Jóhannsson í Kastljósinu!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þessir tónleikar eru að skila krabbameinssjúkum börnum fjórum miljónum að mér skilst! Heldurðu að það muni ekki um það fyrir krabbameinssjúk börn? Ef þú lest greinarsvarið mitt sérðu að ég bendi á að Kristján Jóhannsson er að fá FULLT af fólki á þessa tónleika, þar sem maðurinn er heimsfrægur. Ef við ættum að setja þetta upp sem reikningsdæmi þá hefur Kristján selt helming miðanna, ef ekki meira. Hvað eru fjórar og hálf miljón mínus sjöhundruð þúsund? Munar ekki um það fyrir krabbameinssjúk börn?

Re: Stöðvum fávísi nútíma Sportveiða

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ókei?

Re: Kristján Jóhannsson í Kastljósinu!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
“það skín af honum heimskan” Skaustu þig dálítið í fótinn þarna?

Re: Kristján Jóhannsson í Kastljósinu!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Burt séð frá því hvað gaurinn sé barnalegur þá finnst mér nákvæmlega EKKERT að því að hann taki 700.000 þúsund fyrir þetta. Gætir þú sungið á þrennum tónleikum og selt mörg þúsund miða bara út á þitt nafn? Syngur þú á Ítalíu fyrir margfaldan þennan pening? Myndir þú kaupa þér flug, til og frá Íslandi frá Ítalíu og borga það úr eigin vasa? Myndir þú mæta í laugardagskvöld með Gísla Marteini til að auglýsa þessa tónleika? Þessi maður hefur lagt mikla vinnu og mikinn tíma í að undirbúa sig og...

Re: Verðum við ekki að geta treyst sjúkraflutningamönnum??

í Deiglan fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Alltaf leiðinlegt að sjá þegar fólk gerir hlutina illa og það á líka við hér. Hins vegar höfum við bara heyrt þína hlið af sögunni. sjúkraflutningamann sins gæti hins vegar verið allt öðruvísi, t.d. að þú hafir ekki verið allsgáður og hann hafi ekki skiljað hvað þú varst að segja. Hins vegar veit ég um verra dæmi um ósannaða “vanrækslu” í starfi hjá sjúkraflutningamanni. Hann var kærður af konu sem sagði hann hafa áreitt sig kynferðislega í sjúkrabíl á leiðinni á spítala eftir að hún slasaði...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok