Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Matador
Matador Notandi frá fornöld 42 ára karlmaður
32 stig

Úldið skjáskot (4 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hvernig væri nú að breyta um skjáskot adminar? Arnór Guðjóns er fyrir löngu búinn að gefast upp og er orðinn umboðsmaður, ansi lúnkinn sem slíkur - kallinn. Alla vega þá sendi ég helv. skemmtilegt skjáskot á wbdaz fyrir ekki margt löngu - hvernig væri að birta það, eða þá bara eitthvað annað??

Massimo stendur sig í stykkinu! (3 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Klapp á bakið handa massimo fyrir mjög góðar leikmannaumfjallanir. Gaman að lesa þessar greinar hjá þér vinur og fræðast enn frekar um góða leikmenn og mannlega eiginleika þeirra. Því let´s face it,leikmenn í cm eru jú ekkert nema samansafn af allskonar tölum og einkunnum, þeir gætu allt eins verið einhvers konar vélmenni. Svona greinar eru því kærkomnar til að krydda cm-upplifunina örlítið. Sammála?

Ritskoðun á netinu (3 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Hvað varð um cannab.is, hinn fræðandi og skemmtilega vef. Náðu lobbýistarnir takmarki sínu, ritskoðun á netinu? Líðum við það í okkar opna samfélagi að tjáningarfrelsi okkar sé skert? Er það ekki stjórnarskrár bundinn réttur okkar að fá að segja/skrifa það sem við viljum?

Serge Makofo (1 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Tékkið á Serge Makofo hjá Wimbledon - garuinn fæst á slikk þar sem klúburinn hans á í verulegum fjárhagsörðuleikum. Hann er ungur og rosalega efnilegur - er með 190 í potential ability.

111111 (5 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hér með ert þú að lesa 111111. korkinn sem hefur verið póstaður á hugi.is/cm. Ansi merkilegt, finnst ykkur ekki? CM4ever!

Task Manager (3 álit)

í Windows fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hummm, ég er með smá windows problem hérna - vonandi getiði hjálpað mér. Ég á ársgamla tölvu með windows xp home stýrikerfi. Mér til mikillar furðu er task managerinn í tómu tjóni. Tók eftir þessu fyrir svona 3 dögum síðan. Sem sagt þegar ég ætla að accessa task managerinn ýti ég á ctrl+alt+del, allt gott og blessað með það. En núna birtist task managerinn upp á skjánum en hverfur svo skyndilega aftur eftir 2 sek. Sama hvað ég reyni að gera þetta oft eða hversu snöggur ég er að fikta í task...

Hver er bestur? (9 álit)

í Manager leikir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Jæja strákar og stelpa. Hver er að ykkar mati besti leikmaðurinn í allri Championship Manager seríunni? Hver ber höfuð og herðar yfir meðaljónana? Vinsamlegast tilgreinið í hvaða útgáfu leikmaðurinn brilleraði. Mitt atkvæði hlýtur hinn mikli snillingur Eric “kung-fu” Cantona. Í fyrsta cm-leiknum sem ég prófaði, Championship Manager Italia (CM 1) var hann einfaldlega maðurinn. Ef maður stýrði einu af toppliðunum í Serie A og klófesti Frakkan frakka, þá var (nánast) garanterað að maður ynni...

Veistu þetta? (5 álit)

í Manager leikir fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Sælir félagar. Þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa e-ð á þennan vef en hef þó fylgst með honum í e-n tíma. Ég er cm nörd af gamla skólanum þ.e ég byrjaði að spila ‘93 eða ’94 en þá var það cmita sem var málið. Í dag bíð ég spenntur eftir cm4 en þangað til hefur maður cm 01/02 til þess að stytta sér stundir. Ég update-a leikinn hjá mér reglulega, oftast með downloadum af netinu, en með misgóðum árangri. Mín spurning til ykkar: Notið þið update af netinu? Ef svo er hvort er betra Cm-sorted...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok