Sælir félagar. Þetta er í fyrsta sinn sem ég skrifa e-ð á þennan vef en hef þó fylgst með honum í e-n tíma. Ég er cm nörd af gamla skólanum þ.e ég byrjaði að spila ‘93 eða ’94 en þá var það cmita sem var málið. Í dag bíð ég spenntur eftir cm4 en þangað til hefur maður cm 01/02 til þess að stytta sér stundir. Ég update-a leikinn hjá mér reglulega, oftast með downloadum af netinu, en með misgóðum árangri. Mín spurning til ykkar: Notið þið update af netinu? Ef svo er hvort er betra Cm-sorted eða Cm-euphoria? Hver er munurinn á þeim? Er kanski til e-ð annað og betra? Vinsamlegast svarið bara ef þið hafi vitsmuni til eða eins og segir í Hávamálum: “Mæli þarft eða þegi”