Jæja strákar og stelpa. Hver er að ykkar mati besti leikmaðurinn í allri Championship Manager seríunni? Hver ber höfuð og herðar yfir meðaljónana? Vinsamlegast tilgreinið í hvaða útgáfu leikmaðurinn brilleraði.

Mitt atkvæði hlýtur hinn mikli snillingur Eric “kung-fu” Cantona. Í fyrsta cm-leiknum sem ég prófaði, Championship Manager Italia (CM 1) var hann einfaldlega maðurinn. Ef maður stýrði einu af toppliðunum í Serie A og klófesti Frakkan frakka, þá var (nánast) garanterað að maður ynni deildina. Þessi maður bara gat ekki hætt að skora!