Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Lily2
Lily2 Notandi síðan fyrir 19 árum, 5 mánuðum 33 ára kvenmaður
1.940 stig

J.K.Rowling (3 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Veit einhver hvað hún heitir fullu nafni? Ég er að skrifa ritgerð og vantar nafnið :S Vill einhver hjálpa mér?

Zweistein hefur fengið tækifæri =D (8 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Þar sem ég, af einhverjum ástæðum, er hætt að láta hann fara í taugarnar á mér (sem var bara bull frá upphafi), ákvað ég að gefa honum tækifæri =D Jolly =D ?

Sveitarforingjanámskeið (7 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Hefur einhver græna glóru um hvað kostar á það? Ef einhver veit það væri mjög fínt að vita það, þarf samt ekkert sérstaklega að vita það, en samt… *puppy eyes*

Dönskuverkefni (1 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Í dag gerði ég dönskuverkefni, við áttum að gera framhald af ákveðnum texta á dönsku. Orðaforði minn (og áhugi) í dönsku er ekki upp á marga fiska og því verður líklega leiðinlegt að lesa þetta (bein þýðing á íslensku) og orðin verða ekkert sérstaklega fjölbreytt. Ég og Pabbi minn Ég sat í strætónum á leiðinni heim frá pabba. Við höfðum talað um svo mikið. Við höfðum mjög góð samskipti, en það var eitthvað sem skeði á milli okkar. Það byrjaði með því að við sátum og borðuðum hádegismat þegar...

Dans (80 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Í dag var dans. Fyrir þorrablót sem búið er að troða upp á tíundubekkingana. En allaveganna, ég þurfti að dansa við tvo dauða hluti, Einn strák og vettlinginn !! vettlingurinn og strákurinn voru fínn… En hey… umm…hvað ætlaði ég aftur að segja? Æ, já…eða nei…*hugs*… Já !! Nú man ég það =D gusticool sagði um daginn (langt fyrir jól) að ég væri andlega feit !! Af því að ég borða svo mikið !! (er btw. 150 cm. og 48 kíló…) eða jafn mikið í morgunmat og hann allan daginn (það segir hann…) Eruð þið...

Grettis saga (11 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Þar sem ég er ekki með góðan kennara (sem er sama þó að hálfur bekkurinn liggji sofandi fram á borðið sitt…) var ég að pæla hvort að einhver ætti glósur úr henni. Það eina sem ég náði úr þrjátíu blaðsíðum er að hann sigldi eitthvert, drap tólf manns og einn björn. Er einhver hérna sem bæði á glósur og er yndislegur?

"Vöndur" (13 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Þið getið ekki ýmindað ykkur hversu pirruð ég var þegar ég sá að þýðandinn hafði einu sinni þýtt “wand” í “vöndur”. En ég fór samt að hlæja að þessu þannig að… Þetta er ofarlega á blaðsíðu þar sem Harry er fastur undir huliðsskikkjunni í lestinni, hann reyndi að segja “Accio vöndur”.

Röð :S (14 álit)

í The Sims fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Mjög vandræðalegt. Áðan keypti ég mér loksins “The complete collection of The Sims”. Og það eru billjón diskar !! Hvaða diska á ég að setja inn fyrst og hver er röð leikjanna? Og að síðustu: Hvað er Triple Deluxe? *begging for help*

Afmæli litla bróður, eða hrúga af 11 ára krökkum... (53 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 4 mánuðum
Oj. Eina orðið sem mér dettur í hug. Fullt af litlum ógeðum sem hlaupa um í löggu og bófa, á milli þess sem þeir rífa kjaft við mig. Þeir eru þegar búnir að brjóta rúm litla bróður míns og tréflísar eru út um allt gólf í hans herbergi (stærsta stráknum var hrint í rúmið, á stærð við meðal nashyrning). *höfuðverkur*

Skráning (2 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég veit að þetta gæti verið mjög heimskuleg spurning, en þarf maður að skrá sig einhversstaðar sérstaklega í samræmdu?

Nörd (21 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Allir þeir hlutir sem benda til þess að Addydogg sé ekki nörd: -Hún er ekki vitund lík þeim elsta í kroppagenginu -Hún borar ekki í nefnið og klessir því í skólabækur/borðar það -Hún fær venjulegar einkanir sem eru oft á tíðum bara góðar. -Hún hlær ekki pirrandi -Hún er hreinskilin -Fullt af öðrum góðum hlutum. Í dag sagði ég við Addydogg að hún væri ekki nörd, hún tók því illa. Ég var ekki að tala um að hún væri heimsk þó það hafi hljómað þannig, ég er líka of mikill “aumingi” til að segja...

Heimalærdómur... (25 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Hafiði tekið eftir því að maður nennir eiginlega aldrei að læra heima? Eins og ég á að læra í stærðfræði og á að gera greinargerð á því hversu frábrugðin Reykjavíkurskóli var í gamla daga og Aumingja börnin í Gambíu.

Tunglið á afmæli !! (23 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Nei, tunglið á ekki afmæli í dag. En það átti 4300 milljóna afmæli í gær, fyrsta des. Held að ég hafi aldurinn nokkurn veginn réttann, vona það, en í dag er tunglið 4300 milljóna og eins dags gamalt. Það átti afmæli í gær það átti afmæli í gær það átti afmæli það tunglið það átti afmæli í gær. það var fjögurþúsundogþrjúhundruðmilljóna ára í gær það var fjögurþúsundogþrjúhundruðmilljóna ára í gær Það var fjögurþúsundogþrjúhundruðmilljóna ára í gær Það tunglið það var...

Geitmaðurinn... (10 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég var að selja jólakort fyrir nokkru, þegar maður kom til dyra. Kallinn var ellilegur og með pínu skegg. Það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá hann var “geit”. Svo spurði ég hvort hann vildi kaupa jólakort til styrktar… og hann svaraði ekkert smá geitalega: “Neeeii taaaaakk…” Vonandi prufið þið að segja “neeeei… taaaakk…” mjög geitalega og þá fattið þið hvað þetta var fyndið.

Voldemort og nefið hans (8 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Þegar ég sá nefið á Voldemort fór ég að pæla í því af hverju hann er með svona ljótt nef. Af hverju ekki aðeins stærra? Frekar truflandi, en annars var myndin alveg indisleg =D *Ég veit að það stendur í bókinni að hann hafði ekki nasir heldur rifur, en það stóð samt ekkert um að nefið ætti yfir höfuð bara ekki að vera… Endilega segið hvað ykkur finnst.

Ælupest og Afmælisveisla litla bróður. (36 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Já, ég er komin með ælupest, vaknaði klukkan fimm í nótt til að æla og líka klukkan sirka níu. Svo á litli bróðir minn afmæli á mánudag en hélt upp á það í dag, mér var bara hent inn í mitt herbergi meðan krakkarnir (brjáluðu) voru í klikkuðum boltaleik fyrir framan hverbergið mitt- og svo má líka nefna það að hans herbergi er hliðiná mínu og píluspjaldið er einmitt hinum megin við vegginn þannig að það heyrist mikið hjá mér þegar þeim dettur í hug að fara að kasta… Ég er búin að vera slöpp...

Flóðhestaljóð (2 álit)

í Gæludýr fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Þar sem einhver nefndi flóðhesta hér að framan, eðla í eldri korki, fór ég að hugsa um ljóð sem ég gerði í fjórða bekk. Bekkurinn sprakk úr hlátri. Í dýragarðinum er flóðhestur, allt í einu kom prestur, þá heyrðist rosalegur brestur því flóðhesturinn var sestu

Kennimyndir !! (13 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hvernig finnur maður kennimyndir lýsingarorða og nafnorða? Það stendur ekki í málfinni og ég er að fara í próf á morgun. Þetta er alveg seinasti séns til að reyna að vita þetta. Vill einhver vera svo indislegur að hjálpa mér með þetta?

Vont skap. (72 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég er í sjúklega vondu skapi, mér var kennt um að gera eitthvað sem ég fer ekkert nánar útí. Ég hef síðustu fimm mínúturnar verið að lesa korkum á sorpinu í vondu skapi. Ég hata ákveðna manneskju sem hatar mig á móti, hún byrjaði, og það er hvorki Addydogg né vettlingurinn sem betur fer. AAAAAAAAAAAAAAAARRRRRRRRGGGGGGG… Mig langar að… æi ég veit ekki…umm… Hef ekki hugmynd, en ég er allaveganna í svo vondu skapi að ég er að klikkast, svo kemst vettlingurinn voða fáu sinnum í tölvu svo ég get...

Til Mizzeeh (23 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ljóð til Mizzeeh: Ef þú værir stóll, myndi ég setjast á þig og reka harkalega við =D Ókey, ekki alveg, en ég ætlaði bara að segja að það er einn gaur á Ísafirði sem er alveg eins og Mizzeeh !! Ég horfi alltaf skringilega á hann og hann horfir alltaf á mig eins og ég haldi að ég þekki hann !! That was weeeird =D

Fréttir? (14 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Á ég að gera í kveld? Alveg rugluð, en ég er eiginlega að fara í bíó 8-) á bewiched =D

Fréttir og tölvuvandræði (7 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hvað er málið? Hver á að gera fréttir? Ef ég hef misst af einhverju nennir þá einhver að benda mér á staðinn þar sem þetta stóð? Og svo get ég ekki save að í Word, ég er í deeeeep shit ef mér tekst ekki að laga það einhvernveginn, hér er það sem kemur upp þegar ég segi save: (Allt í lagi, ég týndi miðanum sem mamma skrifaði þetta á. *kíkir*) you do not have necassary permissions to use this functionality. Please contact your system administrator.

Fréttir (36 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég verð að segja af mér vegna þess að ég hef ekki tíma, var að koma heim og á eftir að fara með Bæjarblaðið og læra heima og gera ritgerð í dönsku :( Bæbæ… :'(

Í lagi? (6 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Væri í lagi ef ég bjyggi til fréttirnar á morgun? Upptekin, farin að sofa :S Um daginn í dag, en þær koma á morgun, annars verður annar að koma :S

kvennafrídagurinn og fréttirnar !! (21 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Sedna á að gera fréttir í kveld, en það er kvennafrídagur !! Hvað mun gerast? Frí ? btw. þá föttuðum ég og Gellan123 að ef við byggjum í sama herbergi myndi fatastaflinn vera þrír metrar, einn hjá mér og tveir hjá Gellan123 !! Hugsið ykkur !! Við þyrftum að geyma hann á gólfinu !! En við myndum líklegast bara hafa það í aðskildum hrúgum, veit það ekki… Bæjó Jón Spjæjó…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok