Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Kull
Kull Notandi frá fornöld 178 stig
BB á Mid/Excal (1 álit)
í MMORPG fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Ef einhver hefur hug á að selja buffbot í Midgard á Excalibur servernum endilega láta mig vita. Maður er víst ekki neitt nema hafa almennilegann buffbot í dag.
SI (6 álit)
í MMORPG fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Veit einhver hvar ég get fengið SI fyrir EU útgáfu hér á landi?
Box og magnari til sölu (1 álit)
í Bílar fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Til sölu DLS MW12 12" bassakeilu. Þetta er massa keila, 400W RMS. Hún kemur í góðu 32L portuðu boxi, keypti það í Aukaraf með keilunni. Má einnig geta þess að keilan er ein af mjög fáum með DLS logoinu :) Hef einnig tilvalinn magnara fyrir keiluna. Hann kallast DEI 400 og er frá Directed. Hann er 2x125W RMS eða 1x400W RMS brúaður. Fæst saman á aðeins 30 þús.
Til sölu keila og magnari (0 álit)
í Bílar fyrir 21 árum
Hef til sölu DLS MW12 12" bassakeilu. Þetta er massa keila, 400W RMS. Hún kemur í góðu portuðu boxi, minnir að það sé 30L, keypti það í Aukaraf með keilunni. Má einnig geta þess að keilan er ein af mjög fáum með DLS logoinu. Hef einnig tilvalinn magnara fyrir keiluna. Hann kallast DEI 400 og er frá Directed. Hann er 2x125W RMS eða 1x400W RMS brúaður. Tilboð óskast.
Uppseldur (3 álit)
í MMORPG fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Er DAOC uppseldur alls staðar? Vitiði um einhvern stað sem á hann til?
Til sölu nýr Intel Pentium 4, 2.53GHz örgjörvi (0 álit)
í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Til sölu nýr Intel Pentium 4, 2.53GHz örgjörvi. Hann hefur verið prófaður og er í fullkomnu lagi. Hann er með nýjasta stepping frá Intel sem er C1. Verð aðeins 25.000.
Hvað finnst mönnum um þetta? (3 álit)
í Bílar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þessi grein á mbl.is segir frá ökumanni strætisvagns sem keyrði gegn rauðu ljósi á of miklum hraða og orsakaði árekstur við annan bíl og var dæmdur til greiðslu 80 þús sektar en hélt ökuskirteininu. Persónulega finnst mér þetta fáranlegt, við hljótum að gera meiri kröfur til manna sem keyra á svo þungu ökutæki, sem þar að auki er yfirleitt fullt af farþegum, en til venjulegra ökumanna. Auðvitað hefði átt að svipta manninn...
Græjukeppni og bílasýning (2 álit)
í Bílar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Sælir, eins og sést í atburðakubbnum er Aukaraf með græjukeppni og sýninu á morgun, laugardag og hefst þetta kl. 14. Ég hef heyrt að það verði ansi flottir bílar þarna, bílar sem hafa ekki verið áður á sýningum, sem er gott. Hvet ég alla til að kíkja við og skoða flotta bíla og hlusta á flottar græjur.
Tölva til sölu (1 álit)
í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Tölvan er í Huyndai Turnkassa með 80mm Sunon viftu. Hún er með Supermicro P6SBA móðurborði (getið séð það hér), 700Mhz Pentium III örgjörva, 10GB 7200 rpm hörðum disk, S3 Skjákort, 256MB SDRAM minni, 10/100 netkort, diskettudrif og geisladif. 17” skjár getur fylgt með. Tilboð óskast.
Auto-X (16 álit)
í Bílar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sælir félagar. Sportbílaklúbbur Íslands er að spá í að halda aðra Auto-X keppni 28. september næstkomandi. Hún verður væntanlega á hafnarbakkanum, sama stað og síðast, og verður svipuð í sniðum en ekki eru öll atriði komin á hreint. Ef þið viljið fá meiri upplýsingar eða koma einhverjum hugmyndum á framfæri þá bendi ég ykkur á Spjallvef Sportbílaklúbbs Íslands. Þarna eru einnig reglur og upplýsingar um mismunandi flokka og einnig stórt...
Dunlop hjólbarðar (6 álit)
í Bílar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Veit einhver hver er með umboð fyrir Dunlop hjólbörðum eða hvar sé hægt að kaupa þá?
Til sölu öflugur magnari (3 álit)
í Bílar fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Til sölu DEI 400 magnari. Þetta er mjög vandaður og öflugur magnari og getur léttilega keyrt tvær keilur. Hann er skráður 2x125w RMS við 4 ohm, 2x200w RMS við 2 ohm og brúaður 1x400w RMS við 4 ohm. Magnarinn er um 2 ára gamall en hefur ekki verið í notkun nema í rúmt ár, hann er í fínu standi og fylgir bæklingurinn með. Ég vill fá um 40.000 fyrir hann, sem er ekki mikið fyrir svo öflugann magnara, en menn fá kannski einhvern afslátt ef þeir eru snöggir til. Sendið mér skilaboð ef þið hafið...
Map rotation (19 álit)
í Quake og Doom fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Er ekki kominn tími á að breyta aðeins. Það verður að taka sludge og rexro út, þessi möpp eru ekki að meika það og yfirleitt hálf tæmast serverar eða önnur möp eru kosin þegar þessi koma. Lighthouse má alveg fara líka, það var ekki gott mapp og hefur ekki batnað með árunum :) Hvernig væri að henda einhverjum gömlum góðum inn í staðin, t.d. cliff2, winter, rhcity1 og fleirum. Eða jafnvel finna einhver ný og prufa. Hvernig var svo málið með lrcon? Er það ennþá virkt? Það þarf allaveganna að...
Modduð PS2 vél til sölu (0 álit)
í Leikjatölvur fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Til sölu Playstation2 vél með USB mod kubb. Með fylgja tveir stýripinnar, minniskort og scart snúra. Frekari upplýsingar í kull@simnet.is
Nýji Mini (6 álit)
í Bílar fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Hérna er snilldar auglýsing fyrir nýja Mini-inn: http://http.earthcache.net/bmw-003.oc.earthcache.net/COMP006228MOD1/bobby_big_v003.mov
Til sölu hátalarar (0 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 1 mánuði
Ég hef til sölu DEI 3065 hátalarasett. Þetta eru tveir 16 cm hátalarar, tveir tweeterar og tveir crossover. Þeir eru mjög öflugir enda 100w RMS. Þeir hafa fengið mörg verðlaun og eru taldir mjög góðir. Eina ástæðan fyrir því að ég er að selja þá er að þeir passa ekki í nýja bílinn minn. Hægt er að sjá meiri upplýsingar hér. Settið kostar 35.900 hjá 12 Volt, tilboð óskast.
Skuggalegt myndband (11 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Svona getur gerst ef fólk er að spyrna á götunum. Kíkið á myndbandið hér.
Margumtalaða Hondan hans gmh (46 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Hvernig var með þessa blessuðu Hondu VTi sem gmh hélt fram að væri 190 hestöfl. Mig minnir að hann hafi ætla að láta mæla hestöflin á milli jóla og nýárs. Varð aldrei neitt af því?
Könnunin (2 álit)
í Hundar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Höfundi hefur ekki dottið í hug að hafa valkostinn “nei” með? :)
Skemmtileg myndbönd af Skyline GTR (4 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Nokkur skemmtileg myndbönd frá Japan af Skyline GTR og fleiri bílum hér: http://www.exvitermini.com/various.htm. Stjórnendur: Hvernig gengur að fá svæði á Huga undir myndbönd?
Litli sportarinn minn er til sölu (0 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Videoin (3 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Er ekki möguleiki á að þig getið sett þessi video á huga vefinn sjálfann svo maður þurfi ekki að eyða utanlands download í þetta? Ég er bara með 100Mb á mánuði þannig að nokkur 20Mb video eru snögg að fara með þetta. Það er allaveganna fullt af alls konar dóti undir static.hugi.is, þ.a.m. myndir af formúlunni og martial arts og alls konar, spurning um að fá eitthvað svæði þar.
Eitthvað fyrir tölvunördana :) (1 álit)
í Wolfenstein fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Ef menn vilja gera leikinn aðeins skemmtilegri kíkið þá á þetta: http://www.planetentropy.net/projects/toplesselites.shtml
Könnunin (3 álit)
í Bílar fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hmmm, það virðist vantar verðbilið frá 1-1.5 miljónir í könnunina…
Vantar Pentium2 örgjörva (2 álit)
í Vélbúnaður fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Mig vantar 233-300Mhz Pentium2 örgjörva. Ekki celeron.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok