Sælir félagar. Sportbílaklúbbur Íslands er að spá í að halda aðra Auto-X keppni 28. september næstkomandi. Hún verður væntanlega á hafnarbakkanum, sama stað og síðast, og verður svipuð í sniðum en ekki eru öll atriði komin á hreint.

Ef þið viljið fá meiri upplýsingar eða koma einhverjum hugmyndum á framfæri þá bendi ég ykkur á <a href="http://www.vefsmidjan.is/forums/ski">Spjallvef Sportbílaklúbbs Íslands</a>. Þarna eru einnig reglur og upplýsingar um mismunandi flokka og einnig stórt myndband frá síðustu Auto-X keppni.

Ég hvet alla til að skoða þetta og endilega taka þátt í næstu keppni.