Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kornelius
Kornelius Notandi frá fornöld Kvenmaður
312 stig

Bóluógeð :( (43 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 2 mánuðum
Ég er að verða KLIKKUÐ! Ég er orðin 18 ára og hef aldrei verið með neitt alvarlegt bóluvesen á ævinni. Kannski fengið eina og eina eins og flest allt venjulegt fólk. En núna síðastliðna mánuði hef ég verið að steypast útí bólum! Ég er með blandaða húð og hef venjulega alltaf fengið bara bólur á T-svæðið (enni, nef og haka), en ég er að fá bólur á kinnarnar plús þurrkubletti hér og þar :( Húðin mín er að gera einhverja uppreisn á mér og ég er að gefast upp.. Ég hugsa ekki illa um húðina á...

Er ég svona glær eða? (28 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Er ég sú eina sem fattar ekki neitt? Eins og með linkinn með starfsmönnunum þarna, tvíburarnir, gerði þráð um það hér fyrir neðan.. En núna er ég komin með annað sem ég skil ekki. Þessi “draugalegi” leikur sem er á forsíðunni: http://www.hugi.is/forsida/linkunit_launcher.php?contentId=6374323&from=0 Ég KEMST ekkert áfram og get ekkert gert! Hvað á maður að gera í þessum asnalega leik?! >.< Hjálp :(

Kapital með fjölbreytta starfsmenn? (15 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Á forsíðunni efst, til hægri þar sem linkarnir eru, ég skil þetta ekki ? Hvað er svona “ófjölbreytt” við þá? Þar sem ég skynjaði þetta sem kaldhæðni.

Span pottar? (13 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Ég setti þennan þráð líka á /matargerd, en þar sem þetta áhugamál er miklu virkara (ég veit, allir segja þetta, en það er bara sannleikurinn..) og mig vantar helst svör sem fyrst. Ég var svona að spá hvar er hægt að sjá á netinu hvað svona pottar kosta? Ég tími hreinlega ekki að fara í kokka og kaupa einn pott á 15.000 kall. Þá er ég væntanlega að tala um búðir hér á höfuðborgarsvæðinu, og já, ég er búin að gúgla þetta alltsaman :) sé bara spanhelluborðin.. Öll hjálp vel þegin.

Span pottar? (0 álit)

í Matargerð fyrir 15 árum, 4 mánuðum
Ég var svona að spá hvar er hægt að sjá á netinu hvað svona pottar kosta? Ég tími hreinlega ekki að fara í kokka og kaupa einn pott á 15.000 kall. Þá er ég væntanlega að tala um búðir hér á höfuðborgarsvæðinu, og já, ég er búin að gúgla þetta alltsaman :) sé bara spanhelluborðin.. Öll hjálp vel þegin.

Nagar þú á þér neglurnar? (0 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 4 mánuðum

Hvenær fórstu síðast í klippingu? (0 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 4 mánuðum

Lagfæring á skóm ? (14 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Ég á svona svört stígvél, og hællinn er farinn að eyðast upp. Það sést bara í einhverja járngaura undir hælnum og það heyrist ekkert smá hátt þegar ég labba. :-o Ég var að spá hvort einhver hérna vissi eitthvað um hvort væri hægt að laga svona og hvað það gæti kostað? Takk :)

Internet Love (19 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 6 mánuðum
Var að spá hvort einhver hér muni eftir myndbandinu með íslensku, ljóshærðu stelpunni sem varð ástfangin af einhverjum gaur í puerto rico og þau byrjuðu saman og allir voða happy.. Hann var með gat (pinna) milli augnanna :-O Anyone? Kannast svo við hana ég er að deyja! Búin að leita að þessu myndbandi útum allt :(

Laun húsmæðra (10 álit)

í Heimilið fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Var að velta því fyrir mér hver laun húsmæðra séu? Ef ég myndi t.d. fara í hússtjórnarskólann og verða heimavinnandi húsmóðir, fengi ég einhver spes laun?

Mynd af augum? (20 álit)

í Tíska & útlit fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Tískubóla að senda myndir af augunum sínum? :-O

Hvað er meðal takeoff speed á 747 all types ? (0 álit)

í Flug fyrir 15 árum, 7 mánuðum

Bmw Gina Light Visionary model (16 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 7 mánuðum
Fyrst allir eru farnir að koma með hugmyndabíla þá vildi ég vera með :) Þetta er víst Bmw Gina Light Visionary Model, en boddýið er víst úr einhverju efni - man ekki hvaða efni. Húddið opnast fyrir miðju og svaka svaka :) Hann verður alveg örugglega ekki fjöldaframleiddur þessi, held að fáir myndu kaupa sér svona ;p Hérna er allavega linkur á síðu um bílinn :) http://www.classicdriver.com/uk/magazine/3300.asp?id=13808

Þriðji ísbjörninn var bara hross! (6 álit)

í Tilveran fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Jahá! Það hafiði það. Þessi umtalaði þriðji ísbjörn sem átti að hafa vappað um hálendið okkar reyndist vera hestur. http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/06/20/halendisbjorn_trulega_hross/ Kjánar :)

Hjartsláttartruflanir (62 álit)

í Heilsa fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég vildi bara fá að vita, er eðlilegt fyrir 17 ára stelpu að fá hjartsláttatruflanir? Þá meina ég svona frekar slæmar, ég fæ svimakast eins og það sé að líða yfir mig, svo sortnar mér fyrir augun og hjartað byrjar að hamast, svo stoppar það einhvernvegin og ég hníg eiginlega bara niður ef ég næ ekki að setjast niður. Svo tekur við svakalegt hitakast og ég þarf góða stund að jafna mig. Ég er alveg rosalega máttlaus eitthvað en er búin að reyna að borða eitthvað og drekka kók til að fá orku or...

Lag sem mig vantar (0 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ég veeerð að fá eitt lag, ekki hugmynd um hvar ég gæti nálgast það, þá spyr ég ykkur kæru Hugarar :) Hvar get ég fengið- eða getur einhver sent mér lagið Hekla Björt með Þórði Gunnari Þorvaldss. ? Ég yrði geðveikt sátt ef einhver getur sent mér eða bent mér á hvar ég get fundið þetta lag :)

Kreatín! (36 álit)

í Heilsa fyrir 16 árum, 3 mánuðum
Já þannig er mál með vexti að ég er nýlega farin að stunda lyftingar. Ég er stelpa á 18 ári og er um 55 kg. Ég er hjá einkaþjálfara sem sullar fyrir mig svona próteinshake eftir æfingar til að þyngja mig, og er að fara að kaupa mér tunnu af þessu próteini (man ekki hvað það heitir) En í dag þegar ég var á æfingu þá fór hann að tala um að hann vildi setja mig á kreatín til að byggja upp vöðva hraðar. Er sjálf ekkert að flýta mér neitt svaka með það og hefur alveg gengið ágætlega að byggja upp...

Giskaðu :) (15 álit)

í Hundar fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Ekkert smá fallegir hundar :) Myndi hiklaust fá mér einn ef þeir væru ekki bannaðir á Íslandi. Hver veit hvaða tegund þetta er ? =)

Mini Cooper (13 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Já ég er búin að vera að skoða þessa bíla á bilasolur.is og mér brá bara frekar mikið :s Afhverju eru þessir bílar svona dýrir? Ég einmitt hélt að þessir bílar væru ódýrir. Anyone?

Audi A4 (12 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 4 mánuðum
Ég var bara svona að spá hvort einhver viti hvort þeir eyði eitthvað miklu ? Langar í svoleiðis

Hve oft ferðu að versla þér föt? (0 álit)

í Tíska & útlit fyrir 16 árum, 5 mánuðum

Framhjáhald (9 álit)

í Húmor fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Held að þessi mynd hafi komið hingað áður en er ekki viss, finnst hún bara svo mikil snilld að ég varð að koma með hana :)

Weebl&Bob (13 álit)

í Húmor fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Æ þeir eru svo miklir snillingar :)

Aygo, Corolla o.fl. (7 álit)

í Bílar fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Ég var að heyra það að ef ég myndi fá mér sjálfskiptan Aygo, Corollu, Auris (man ekki fleiri) að sjálfskiptingin sé ekki eins og á venjulegum bílum. Maður þyrfti að sleppa bensíngjöfinni eða eitthvað þegar hann er að skipta um gír. Hefur einhver annar heyrt eitthvað um þetta eða veit um þetta?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok