Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Til Konu (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Til Konu Ef væri ég konungur krýndi ég þig, kona mín, drottningu heimsins,. því fegurð þín ætíð fellt hefur mig; þú fjársjóður himingeimsins. Fegurstu perlur fölna hjá þér, fölna og hverfa í skuggann. Lífs af þér bjartasta ljósið er, er lýsir upp ástargluggann. Dýrð þér eilíf, drottningin fróma; dásemdir falli þér í skaut. En myndu hann sem mun þig æ róma, mig sem æva fyrir þér laut. Blessa þú mig æ blíðasta meyja og berðu glöð hér sælunni mót því fyrir þig skal ég fúslega deyja, fyrir þig...

Ástarsorg (1 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Dauðinn kom og drakk mitt blóð, dró að höfði mínu glóð. Hjartað grét er hún brott fór; hryggðin var mér sár og stór. Einn ég sit og sýti þá snót er burtu gekk mér frá. Tár á kinn og kalið hjarta, konan yfirgaf mig, bjarta. Nú er tóm og næðir kalt, nú er horfið ljósið allt, nú er sorg og sálin grætur, sjást ei lengur bjartar nætur. Fastur í drunga, þrái að deyja, Drottinn, hvar er nú sú meyja er tók mitt hjarta og tók mitt líf? Tók og drauma mína víf. Ó að birtist aftur hér ástin heit að...

Rósin (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Rósin Ég fann hér eitt blóm, fágæta rós, í garði granna míns. Ég var hér einn er leit hana augum og hún snart hjarta mitt. Langa tíð stóð ég og naut fegurðar hennar en gekk svo hnugginn á braut, út í einskismannsland og hirti á förnum vegi blóm hvers ilmur ei heillaði svo ég lét það liggja um kjurt. Áfram ég gekk um ókunna garða uns heyrði ég úr fjarska kallað mitt nafn. ,,Ég elska þig“ heyrði ég kallað úr garðinum. ,,Elskaðu mig” heyrði ég kallað úr garðinum. Ég leit upp og þar var hún,...

Þótt Aldirnar Líði (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þótt Aldirnar Líði Þótt aldirnar líði og allt hérna deyji Þá alltaf mitt hjarta skal gæta að þér Svo aldrei þú villist af hamingju vegi Og vonin þér fylgi í dvölinni hér. Hvað sem að verður þá veistu mín kæra Að verð ég að eilífu þér við hlið Og jafnan þá lífsins sorgir þig særa Að sárum ég hlúi og veiti þér lið. Ef einmanna býður þú ástar að njóta Þá alltaf skalt vita hún dvelur þar æ Hvar náðir þú Amors örvum að skjóta’ Og sem engum var forvandis kastað á glæ. Ef þarfnastu huggunar mitt...

Pick-up línur (2 álit)

í Rómantík fyrir 20 árum, 10 mánuðum
eh kanski á þetta að fara á Kynlíf?? eða hvað? Pick-up línur - Get ég boðið þér í glas eða viltu bara peninginn? - Trúir þú á ást við fyrstu sýn eða ætti ég að ganga fram hjá þér nokkrum sinnum? - Ég er auðveld bráð, hvað með þig? - Sérðu vin minn þarna [bendir á vin þinn], hann bað MIG um að spurja ÞIG hvort að ÞÉR fyndist ÉG sætur… - Áttu kærasta? [Ef svarið er nei: Viltu einn?, Ef svarið er já: Viltu annan?] - [Þegar hún er að fara] Hey … ertu ekki að gleyma einhverju? Hún: Hverju? Þú:...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok