eh kanski á þetta að fara á Kynlíf?? eða hvað?

Pick-up línur
- Get ég boðið þér í glas eða viltu bara peninginn?
- Trúir þú á ást við fyrstu sýn eða ætti ég að ganga fram hjá þér nokkrum sinnum?
- Ég er auðveld bráð, hvað með þig?
- Sérðu vin minn þarna [bendir á vin þinn], hann bað MIG um að spurja ÞIG hvort að ÞÉR fyndist ÉG
sætur…
- Áttu kærasta? [Ef svarið er nei: Viltu einn?, Ef svarið er já: Viltu annan?]
- [Þegar hún er að fara] Hey … ertu ekki að gleyma einhverju? Hún: Hverju? Þú: Mér!
- Geturðu lánað mér tíkall? Ég þarf nefnilega að hringja í mömmu þína og þakka henni fyrir að hafa fætt þig.
- Var það sárt? Hún: Var hvað sárt? Þú: Þegar þú féllst ofan af himnum.
- Kemurðu oft hingað? [klassísk lína]
- Ég hlýt að vera villtur, ég hélt að paradís væri lengra í suður!
- Hæ, ég er nýr í bænum, geturðu nokkuð gefið mér leiðbeiningar um hvernig ég kemst heim til þín?
- Fyrirgefðu, varstu að tala við mig? Hún: Nei… Þú: Ok .. þú mátt þá byrja á því núna.
- Hvenær þarftu að vera komin aftur til himna?
- Værirðu til í að snerta mig svo ég geti sagt vinum mínum að ég hafi komið við engil?
- [Kíktu á miðann aftan á skyrtunni hennar. Þegar hún spyr: “Hvað ertu að gera?”, segir þú: “Jáá … eins og
mig grunaði… “MADE IN HEAVEN”.
- Fyrirgefðu … hvað er klukkan? Hún: hálf 12, Þú: Ahaa … 21. júlí 2003 … klukkan hálf 12 …
Ég vil bara leggja stundina á minnið þegar ég hitti fallegustu konu í heimi.
- Áááá … mig verkjar í tennurnar. Hún: Afhverju? Þú: Þú ert svo sæt …
- Þú ert svo sæt, að Nói Síríus fer fljótlega á hausinn …
- Þú ert eins og eldspýta … Hún: Nú, af hverju? Þú: Þú kveikir í mér…
- Er heitt hérna inni, eða ert það bara þú?
- En hérna … vinnirðu eitthvað? Fyrir utan að láta menn falla í yfirlið…
- Hefurðu verið í fangelsi? Því það hlýtur að vera ólöglegt að vera svona falleg.
- Ég verð að fá að vita það … hvernig er að vera fallegasta manneskjan í herberginu?
- Þú lítur út eins og þriðja konan mín. Hún: ”Váá … hversu oft hefur þú eiginlega verið giftur?“ Þú: Tvisvar …
- Fyrirgefðu, en má ég aðeins daðra við þig?
- Má ég vera þrællinn þinn í kvöld?
- Til hamingju! Þú hefur verið kosin ”Fallegasta konan á staðnum“ og verðlaunin eru nótt með mér.
- Veistu það að háraliturinn á þér og liturinn á koddaverinu mínu myndu passa rosalega vel saman…
- Hjálpaðu heimilslausum … taktu mig með þér heim!
- Hérna er tíkall, hringdu heim til þín og segðu að þú komir ekki heim í nótt.
- Þú verður að hjálpa mér! Mamma segir að ef ég nái mér ekki í kvenmann fyrir morgundaginn ætli
hún að gefa mig.
- Ég skal elda kvöldmat handa þér ef þú býrð til morgunmat handa mér!
- Þessi kjóll myndi líta æðislega út … í hrúgu við hliðina á rúminu mínu.
- Það eru 265 bein í líkamanum … hvernig líst þér á að fá eitt í viðbót?
- Það er eitthvað að augunum í mér, ég get bara ekki hætt að horfa á þig…
- Hvort er erfiðara, þú að komast í þessar þröngu buxur … eða ég að koma þér úr þeim?
- Hérna … ég er búinn að týna símanúmerinu mínu, ertu til í að láta mig fá þitt?
- Hvernig kemst ég í aðdáendaklúbbinn þinn?
- Hæ! Mamma þín komst ekki og bað mig um að fylgja þér heim.
- Ef þú flettir upp í alfræðiorðabók að ”hættuleg villidýr", þá myndirðu sjá mynd af félaganum á mér …
- Fyrirgefðu .. en má bjóða þér fullnægingu?
- Bíddu … höfum við einhverntíma sofið saman?
- Hvað segirðu um að við tökum einn stuttann og fáum okkur pizzu? [Hún brjálast]
Þú: Hva, fílarðu ekki pizzu?
- Hæ, langar þig til að eignast börn með mér? [svarið er líklega NEI] .. en hvað segirðu þá um að við
æfum okkur bara?
- Hæ, ég heiti [nafnið þitt], bara svo þú vitir hvað þú eigir að öskra í rúminu með mér …
- Dagsetningin á smokkunum mínum er að renna út, geturðu hjálpað mér?
- [Taktu með þér ísmola og brjóttu hann fyrir framan hana]. Þar sem ég er búinn að brjóta ísinn .. viltu
sofa hjá mér?
- Hvað segirðu um að förum heim til mín í smá stærðfræði: drögum af okkur fötin, deilum rúmi og
margföldum okkur!
- Þessi bjór sem þú varst að drekka … ég veit um pottþétta leið til að brenna kaloríunum í honum.
- Fyrirgefðu … en ég vildi bara spyrja hvort þér væri sama þó þú værir í blautu draumunum mínum
framvegis?