Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Idnnemi
Idnnemi Notandi frá fornöld 160 stig

Örri fyrir 478 sökkul (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hæ! Mig vantar Intel örra sem passar í socket 478 - P4. Ég er að leyta eftir ódýrustu lausninni - þ.e. Celeron. Kveðja, FigRoll

Activate WinXP (4 álit)

í Vélbúnaður fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Kæru Hugarar! Ég er pínulítið strand með uppfærslu á tölvunni minni. Þannig er mál með vexti að ég er skipta út móðurborði, skjákorti, vinsluminni og örgjörfa en ætla hinsvegar að halda harðadisknum. Þetta væri lítið mál með Win98. Þá hefði ég einfaldlega bara straujað diskinn og sett það “fresh” inn aftur. S.l. vetur fékk ég mér WinXP og “activate-aði” það. Það verður að segjast að handbókin með stýrikerfinu er ekki greinargóð um þessi “activation” leiðindi. Hvernig bera menn sig að við...

Ábending! (9 álit)

í Unreal fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Góðir hálsar! Nú er sumarið gengið í garð og vonandi hafa flestir fengið vinnu. Fyrir alla muni ekki eyða sumarkaupinu í sígarettur, kellingar, utanlandsferðir, áfengi, gotterí, föt, bensín, strætó, bretti, djamm eða neinn annan óþarfa. Kaupiði vélbúnað og síðan UT2003. Ef allir gera þetta þá getum við haft almennilegt stríð í haust. Getur einhver sagt mér hvaða skjákort kemur vel út fyrir UT2003? Ég er að leyta eftir korti sem má ekki kosta meira en 20k. Hvort ætli sé betra Ti4200 eða...

Skólagjöld (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 1 mánuði
Fyrir aðeins nokkrum árum voru blankheitin á ríkissjóði svo mikil að Sjálfstæðisflokknum fannst sjálfsagt að ganga í vasa tekjulausra námsmanna til þess að laga stöðuna. Framsóknarflokkurinn stóð reyndar gegn þessu og náði fram málamiðlun um það að hækkunin yrði aðeins helmingur þess sem Sjálfstæðismenn vildu. Er það trúverðugt núna í aðdraganda kosninga þegar Sjálfstæðisflokkurinn þykist vera velferðarflokkur? Munu þessar hækkanir ganga til baka nái flokkurinn endurkjöri? Það efast ég um.

Fujitsu HD (2 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Góðan dag. Til sölu Fujitsu MPE3173AE harður diskur. Diskurinn var keypur nýr í Tölvulistanum í mars 2000 og hefur verið notaður töluvert síðan. Hann hefur ávalt fengið góða meðferð og aldrei orðið fyrir hnjaski. Diskurinn snýst af mikilli mýkt og fegruð 5400 snúninga á mínútu og getur geymt u.þ.b. 17 Gíga bæti (eða eru það bitar, ég veit það ekki). Kapall er ekki meðfylgjandi honum. Jafnframt skal þess getið að enginn hugverk eru á disknum, m.ö.o. hann er ný forsniðinn. Nánari...

Tölvuleikir (0 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég vona að ég sé ekki að brjóta einhverjar reglur með þessum kork hér í vélbúnaðardeildinni. Eftirtaldir tölvuleikir fást keyptir við vægu verði. Jane's combat simulations - Longbow 2 Jane's combat simulations - F-15 Need for speed, Porsche 2000 Driver Outlaws Hexen II Tilt - kúluspil Upprunalegar umbúðir og leiðbeiningar eru meðfylgjandi öllum leikjunum nema Need for speed, þar vantar umbúðirnar. Allir leikirnir verða seldir saman á kr. 100,00, segi og skrifa íslenskar krónur eitthundrað...

Virðulegur öldungur (6 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Til sölu eðaltölva sem vinnur verk sín í hljóði, ASUS P/I-P55SP4V. Örri - Intel Pentium MMX, 233MHz. Móbó - ASUS P/I-P55SP4V, 4xPCI og 3xISA. Skjápadda - ASUS, skjáminni 2MB sem tekin eru af vinnsluminni. Hljóðkort - ASUS, (flaga Creative Vibra16c PnP). Harður diskur - Quantum Fireball 1,2Gb. CD-ROM - Toshiba. Vinnsluminni - 96MB. Samsung Multimedia lyklaborð. Qtronix mús. Stýrikerfi - Windows 95 uppsett. Meðfylgjandi hugbúnaður er Windows 95 á CD-ROM ásamt Certificate of Authenticity....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok