Góðan dag.

Til sölu Fujitsu MPE3173AE harður diskur. Diskurinn var keypur nýr í Tölvulistanum í mars 2000 og hefur verið notaður töluvert síðan. Hann hefur ávalt fengið góða meðferð og aldrei orðið fyrir hnjaski. Diskurinn snýst af mikilli mýkt og fegruð 5400 snúninga á mínútu og getur geymt u.þ.b. 17 Gíga bæti (eða eru það bitar, ég veit það ekki). Kapall er ekki meðfylgjandi honum. Jafnframt skal þess getið að enginn hugverk eru á disknum, m.ö.o. hann er ný forsniðinn. Nánari tækniupplýsingar um diskinn má fá á eftirfarandi slóð:

http://www.fel.fujitsu.com/home/product.asp?L=en&PID=196&INFO=fsp

Óskað er eftir tilboði í diskinn - lámarksboð er kr. 800,- segi og skrifa íslenskar krónur áttahundruð 00/100.

Tilboð skulu send á Idnnemi í Hugapósti fyrir kl. 24:00 föstudaginn 7. mars 2003 en þá verða tilboðin opnuð.
Einungis hæstbjóðanda verður svarað og skal hann vitja disksins hjá seljanda eftir samkomulagi og staðgreiða með reiðuféi andvirði hans.

Virðingarfyllst,
Stjórn Sölu varnarliðseigna
Finnbogi Rammi
Sigurjón Digri