Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Heyglo
Heyglo Notandi síðan fyrir 20 árum, 8 mánuðum 34 ára kvenmaður
170 stig
Fyrirgefðu, vinnur þú hér?

Tískuþáttur (5 álit)

í Skátar fyrir 14 árum, 7 mánuðum
Ég er orðin nokkuð leið á að sjá ekki lengur skátatískuþátt bskata lengur! Ég er örugglega ofsalega lummó enda fylgi tísku frá því fyrir löngu síðan Hvað segið þið? er ég lummó? Á bskati að skrifa nýjan tískuþátt?

Pavlova (2 álit)

í Matargerð fyrir 15 árum, 5 mánuðum
Hefur einhver hérna bakað Pavlovu? Hún brennur alltaf hjá mér… eru einhver ráð??

Skáta Harry Potter (4 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 5 mánuðum
HAHA þetta er mynd af Daniel Radcliffe, gæjinn sem leikur Harry Potter, í þáttunum Extras… og hann er í skátabúning HAHA. http://www.hugi.is/hp/images.php?page=view&contentId=5370924

Afmæli (6 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 5 mánuðum
Til hamingju með 95 ára afmælið allir saman :D

lækjarbotnar (2 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Ú hæ, enn einn korkurinn frá mér! veit einhver stöðuna á lækjarbotnum helgina 20-21 okt? Hvort skálinn er bókaður eða ekki og hvað kostar yfir þessa einu nótt! Kannski væri líka hægt að gefa mér upplýsingar um einhvern sem gæti hugsanlega vitað þetta! Eygló, duglegi sveitarforinginn… not!

Landsmóts flíspeysan 2008! (16 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 6 mánuðum
Var að koma af fundi með stjórn landsmótsins um mótseinkenni og var einróma tekin ákvörðun um hvernig landsmótsflísin 2008 ætti að vera. Hérna fyrir neðan er linkur inn á mynd að gripnum! http://tmooka.net/gallery/balloonjacket.jpg Mér finnst hún flott, allavega betri en hún hefur verið síðustu landsmót… hvað finnst ykkur?

Nýr banner (11 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 6 mánuðum
hver vill nýjan banner? mér finnst þessi banner of mikil staðalímynd skáta… langar meira að hafa mynd af tjaldi í snjókomu eða eitthvað… bara eitthvað sem er skátalegra en að labba niðrí bæ á sumardaginn fyrsta. þótt þetta sé nú alveg heví mymdarlegt fólk ;)

Flokkst/sveitarfunda banki! (14 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Hey var að velta fyrir mér þar sem ég er nú ekki sú allra skipulagðasta og lendi yfrileitt í því að vera að ganga upp í skátaheimili þegar ég man allt í einu að ég hafði ekki skipulagt fundinn minn. Væri þá ekki sniðugt að hafa svona funda banka. Væri þá líka hægt að hafa leikjabanka og eitthvað þannig töff :D Eygló Sæmundardóttir!

Sudden weather change! (5 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 16 árum, 7 mánuðum
Hverjir ætla að tékka á þessu bandi á airwaves? www.myspace.com/suddenweatherchange

Landnemamót!! (18 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 10 mánuðum
Hey hvernig var eiginlega?? ég vil öll smáatriði!! komst ekki vegna þess að ég var erlendis!!

Flíspeysur (19 álit)

í Skátar fyrir 16 árum, 11 mánuðum
jæja… nú er endalaust langt síðan einhver gerði eitthvað hérna… og ég kíki hingað á hverjum einasta degi í von um að einhver óbreyttur skáti hafi skrifað eitthvað um skátafundinn sinn seinasta. En ekkert slíkt hefur gerst svo ég ákvað að skrifa hingað nokkur orð til að koma smá lífi í þetta aftur. Ég fékk spurningu frá strák um daginn sem hafði verið að velta þessu fyrir sér síðastliðið hálfa árið, afhverju skátar væri alltaf í flíspeysum. Sjálf hef ég ekki gert mér grein fyrir einhverju...

Útilífshelgi Skátaflokka (38 álit)

í Skátar fyrir 17 árum, 1 mánuði
Nei verið sæl og blessuð!! Nú fer að líða að Útilífshelgi Skátaflokka, sem er náttúrulega eitt það skemmtilegasta sem skáti getur hugsað sér. Nú er það bara svoleiðis að mig langar að vita, hverjir ætla að koma? Ætlið þið ekki að hjálpa okkur að gera þetta að einum af frábærustu atburðum vetrarins? Geggjað

Sufjan Stevens (3 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Ef einhver á miða á Sufjan Stevens sem hann/hún vill selja mér þá er það guð velkomið. Hringja í síma 692-6793 eða bara senda mér skilaboð á huga.

Ofurhetjudagbók? (8 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hvern langar í nýja ofurhetjudagbók Jónasar Jómfrúarlega og Stínu Stjúpmömmulegu bráðlega?

Ofurhetjudagbók Jónasar Jómfrúarlega og Stínu Stjúpmömmulegu: 1/48 (4 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Kæra Dagbók Í dag börðumst við við endakallinn í sjötta leveli. Dagurinn byrjaði samt eins og venjulega Jónas þreif áttahundruð fjögurhundruð fimmtíu og þrjá diska með Runólfi og Stína þreif 378 klósett með ofur klósettburstanum. Anna Marta lukkutröll lærimeistari okkar vildi að við færum í megrun. Við fórum í langan bíltúr í sínum hvorum bílnum ef annar skyldi nú lenda í árekstri. Komumst báðar lífs af og við vorum svangar. Anna Beta vildi ekki fara á Hróa en píndist. Erna veitti okkur ekki...

Ofurhetjudagbók Jónasar Jómfrúarlega og Stínu Stjúpmömmulegu: Askur Víðförli og fjársjóður bragðlaukanna (6 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Kæra dagbók! Í dag börðumst við við Kúng fú hamstur. það er ekki frásögu færandi nema hvað að við byrjuðum daginn eins og venjulega. Jónas þreif áttahundruð fjögurhundruð fimmtíu og þrjá diska með Runólfi og Stína þreif 378 klósett með ofur klósettburstanum. Anna Marta lukkutröll lærimeistari okkar sagði að hún vildi helst ekki að við værum alltaf í sundi. Nú vandaðist málið því Anna Guðný kvaðst vera fullorðinn maður. Jónas sagði að svo væri hann líka. Þegar leið á daginn var lítið annað...

Ofurhetjudagbók Jónasar Jómfrúarlega og Stínu Sjúpmömmulegu: Þegar Stína missti málið (3 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Kæra dagbók Í dag börðumst við við hana sem var ekki hani heldur Erna. En við ætlum að segja söguna frá byrjun. Við vöknuðum og fórum að vinna. Jónas þreif áttahundruð fjögurhundruð fimmtíu og þrjá diska með Runólfi og Stína þreif 378 klósett með ofur klósettburstanum. Anna Marta lærimeistari okkar bað Jónas að biðja Stínu að passa sig á bönununum því þeir væru eitraðir. Jónas og Runólfur áttu notalega stund saman og einhverja hluta vegna gleymdist viðvörunin. Á hverjum morgni borðar Stína...

Ofurhetjudagbók Jónasar Jómfrúarlega og Stínu Stjúpmömmulegu (4 álit)

í Sorp fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Kæra Dagbók Í dag börðumst við við ljón. Það er sko saga að segja frá. Dagurinn byrjaði samt eiginlega á því að við vöknuðum og fórum að vinna. Jónas þreif áttahundruð fjögurhundruð fimmtíu og þrjá diska með Runólfi og Stína þreif 378 klósett með ofur klósettburstanum. Anna Marta Lukkutröll, læri meistari okkar, fór í burtu í gær. Sagði að við værum orðin nógu góð til að gera allt upp á okkar eigin spýtur. Jónas er búinn að sérhæfa sig í Júdóbrögðum en Stína í Súmóglímu. Saman geta þau...

Fjölskylda við hafið bláa í Mexíkóflóa (3 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þetta er saga sem ég, lindglo, og sulur bjuggum til eitt haustkvöld. Það var einu sinni lítill maður frá Mexíkó. Hann átti 18 börn og konan hans átti von á sexburum í apríl en nú var janúar. Svo áttu þau líka 2 hunda sem hétu Jan og Afet. Börnin þeirra 18 áttu það til að strippa í garðinum á laugardögum, nágrönnunum til mikillar ánægju en foreldrum þeirra til mikillar mæðu. Þar sem menntunarstig var frekar lágt og atvinnuleysi frekar hátt var peningur mjög bágur og fólk átti það til að kasta...

Skáti segir satt og stendur við orð sín! (13 álit)

í Skátar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já…Þessi grein er búin að vera í býgerð síðast liðnar tvær vikur og loksins sendi ég hana inn. Ég var svona að velta því fyrir mér hvort að það verði gott veður á landsmóti. Þegar ég byrja að skrifa þessa grein var þykkur skýjamökkur yfir Reykjavík og svæðið þar í kring og það lítur út fyrir það að ekki eigi eftir að rætast úr þessum skýjum. Sem mynnir mig á það… Afhverju fæ ég aldrei að vita af flokkaverkefnum í sambandi við Landsmót? Mig langaði til þess að flokkurinn minn myndi vera með...

Plís bara draumur (0 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
,,Lækkaðu í sjónvarpinu.” ,,Nei… eða ókei.” ,,Ég heyri ennþá.” ,,Ég er samt búin að lækka.” ,,Hvað lækkaðirðu um mörg strik?” ,,Fimm” ,,Lækkaðu um fimm í viðbót!!” ,,Þá heyri ég ekki neitt.” ,,Gott, því ég er að reyna að sofna!” ,,Allveg þoli ég ekki hana mömmu.” ,,Þú bara átt ekki að… að… hafna henni svona.” ,,Hafna henni? Hvað meinaru með því?” ,,Jú sko, þegar þú ert að tala svona ertu að hafna henni með því að andmæla því sem hún telur réttast, og samhvæmt nýjustu tölum heilans í mér er...

Örsaga (0 álit)

í Smásögur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Guðmundur= Hugsuður alls… Það er snilld að getað legið í nýslegnu grasi og hugsað um býflugurnar og blómin í rólegheitum með einhverjum sem maður þykir vænst um. Það er ekkert þægilegra að fá sér sæti á svartri rólu fyrir einn og láta loftið leika um fætur sér eins og láta hárið fjúka út um allt andlit og sjá ekkert útum skítug gleraugun. Þetta hugsaði Guðmundur á 7 mínútum en það jafnast ekkert á við að setja fæturnar á bólakaf í sandinn.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok