Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Grunt
Grunt Notandi frá fornöld 51 ára karlmaður
68 stig
-Gulli

Hvenær fer þjóð í stríð? (12 álit)

í Deiglan fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Hvenær fer þjóð í stríð? Hver er skilgreiningin á stríði? Er það þegar stríðsyfirlýsing er undirskrifuð af þingi/þjóðhöfðingja, og send þeim sem á að fara í stríð við? Eða þegar fyrsta skotinu er hleypt af, eða fyrsti hermaðurinn stígur á land, fyrstu sprengjunni er varpað, fyrsti saklausi borgarinn fellur? Eða kannski hvert og eitt af þessum atriðum? Og hvernig fer vopnlaus þjóð í stríð? Eina leiðin held ég er að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við annan hvorn aðilann. Og þar með ertu...

Forritunarumhverfi og framtíð þeirra (21 álit)

í Forritun fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Forritunarumhverfi (e: Integrated Development Environment, IDE), eru hugbúnaðarkerfi hönnuð til að aðstoða forritara við að skrifa, aflúsa og halda utan um forritstexta. Ætli fyrsta slíka umhverfið sem undirritaður komst í tæri við hafi ekki verið Turbo Pascal 3.3. Á sínum tíma var það umhverfi framúrskarandi tól fyrir forritara, eitt af þeim fyrstu sem bauð upp á innbyggðan aflúsara og hafði einnig mjög hraðvirkan þýðanda sem gerði þetta að afkastamiklu tóli. Síðar meir fór ég meira yfir í...

Harðstjórar og friðarhreyfingar (80 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Nú er komið svo að íslenskir stjórnmálamenn þverbrjóta grundvallarreglur lýðræðisþjóðfélags í þágu þess að halda uppi góðum samskiptum við eitt helsta kúgunarríki heims. Það að þetta ríki skuli vera það fjölmennasta í heimi, virðist vaxa ráðherrum þessarar ríkisstjórnar svo í augum, að þeir láta kúga sig til að virða að vettugi þá blóði drifnu sögu sem liggur að baki þessum manni sem von er á til landsins á fimmtudaginn. Ég spyr, hvaða harðstjóra ætlar ríkisstjórnin að taka upp á arma sína...

XP - Jaðarforritun (15 álit)

í Forritun fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Undanfarin ár hefur aðferðafræði sem nefnist eXtreme Programming (ísl: Jaðarforritun) verið að ryðja sér talsvert til rúms. Ég veit að nokkur fyrirtæki hafa verið að spá í þetta, og ansi margir kannast við hugtakið, en ekki endilega fyrir hvað það stendur. Mín túlkun á XP er eitthvað á þá leið að það sem menn eiga að einbeita sér að er að setja upp reglur og vinnuvenjur sem miða að því að gera fólki kleift að semja hugbúnað á áhrifaríkan hátt, öfugt við þá hugmynd að skilgreina skjöl og...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok