Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Character Sheets (0 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Shadowrun CS
Alternity CS
Monsters Manual (3 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Er einhver hér búinn að kaupa eða kíkja á nýja 3rd edition monsters Manual? ég leit á hann um daginn og ég verð að segja að ég varð fyrir smá vonbrigðum. Coverið er flott og er í stíl við gömlu coverin en uppsetningin er léleg miðað við gömlu manualin. Nú er minni texti fyrir hvert kvikindi og um leið og búið er að segja frá einu þá kemur að næsta í staðinn fyrir að það er ein heil blaðsíða fyrir hvert og eitt einasta kvikindi eins og í gömlu bókunum. Plúsinn við þetta er að hún verður ekki...
Adios (2 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég kveð ykkur núna í heila viku og þegar ég kem til baka skal þessi korkur vera troðfullur, svo að ég hafi einhverju að svara :) Er farinn til Amsterdam og Rotterdam í heavy fyllerí og dóp(take this with a grain of salt),(en aðallega til að skoða skóla )
Atmosphere Tónlist (6 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Spurning hvort að einhverjir hérna spila einhverja tónlist meðan þeir eru að spila. Ég og minn hópur spiluðum alltaf tónlist og þá oftast Dracula, Interview with the Vampire og stundum jafnvel Hexen II tónlistina. Spurning að þið vitið um einhverja aðra tónlistardiska sem gott er að hlusta á. Persónulega finnst mér kvikmyndadiskar bestir. Stundum spiluðum við þó NIN eða Limp Bizkit en það var aðallega í Mage og Vampire. (fá svona Urban feeling)
White Wolf Limited (0 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þeir hjá White Wolf eru að bjóða til sölu Limited Edition útgáfur af WereWolf: The Apocalypse, Áritaðar útgáfur af Laws of Ascension og ennþá eru til nokkur eintök af Mage the Ascension:LE(Mjög flott bók, keypti mér hana nefnilega). Þið gætuð samt búist við því að þær séu frekar dýrar. Alla vega kostaði LE Vampire Storytellers Guide um 60 dollara (6000 kall) og sama gildir um Mage the Ascension bókina.
Meira EarthDawn (0 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Svo virðist sem EarthDawn er að eiga uppreisn æru þar sem Living Room Games Publishing hafa fengið útgáfu rétt á bókunum og ætlast til að fara að gefa þær aftur út. Yes!!
Dallas, TX - March 13, 1999 - Living Room Games announces it has acquired a license from FASA Corporation to publish supplements for the Earthdawn roleplaying game, reviving it from a 14-month moratorium. “We expect to print our first Earthdawn book in the spring of this year, with one or two others to follow in...
EarthDawn (3 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hver hér man eftir EarthDawn? EarthDawn var basicly Shadowrun heimurinn á fantasíu tímabili þar sem drekar og dvergar voru frekar algengir. Og í staðinn fyrir Classes var fólk kallað Adept (being adept at something) sem notuðu þannig séð orku til þess að gera hetjudáðir sínar. Því miður hætti Fasa að gefa út EarthDawn en samt er frekar sterkur aðdáenda hópur ennþá til. Ég og vinir mínir vorum til dæmis í stóru ED campaigni. Er bara að spá hvort að það er einhver hér sem er líka hrifinn af...
útgáfu listi (3 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þar sem fólk sýnir talsverðan áhuga á þessu hef ég ákveðið að senda inn lista yfir nýjustu vörurnar(og nokkrum væntalegum).
Útkomið Dungeon & Dragons 3rd Edition DungeonMaster's Handbook
Dungeon & Dragons 3rd Edition Player's Handbook
Gazetters (Spurning hvort að það sé það sama og var í gömlu gazetters bókunum)
D&D Adventure Game (Box set, Ævintýri og grunnreglur. Starter Kit)
Diablo II Adventure Game(fyrir þá sem vilja meira en bara...
Þeir sem vilja byrja... (4 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þeir sem vilja byrja og vantar roleplay bækur þá endilega kíkja í Nexus VI á hverfisgötunni. Kannski ekki besta úrvalið á Íslandi en ágætt til þess að byrja og meiri séns að þeir leggi harðar af sér með RPG ef fólk fer að versla meira hjá þeim.
Dauði TSR (0 álit)
í Spunaspil fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Hver veit ekki hverjir TSR eru/voru?(Þetta gildir bara um Roleplay nötta). TSR er án efa eitt virtasta fyrirtækið í þessum bransa en fyrir nokkrum árum voru þeir næstum gjaldþrota? Margir segja að helsta ástæðan fyrir því hafi verið sú að AD&D second edition væri yfir höfuð slæmt kerfi miðað vði þau kerfi sem voru komin út, eins og White Wolf Storyteller kerfið og mörg önnur. Aðrir segja að TSR hafi verið of latir að gefa út beginner modules svo að byrjendur gætu kynnst kerfinu. TSR gaf þá...
geðveikt fyndin síða (6 álit)
í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
http://www.shit.com
Alla vega... (7 álit)
í Unreal fyrir 23 árum, 6 mánuðum
á bjartari nótum Er einhver hérna á klakanum sem er að búa til borð fyrir UT? Maður er að spá hvort að maður ætti að leggja sig út í það. Annars er maður að fara að gera módel fyrir (forgive me) Quake III. Endilega svara
skemmtilegt Flash eða þannig (1 álit)
í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
http://morbid.clanpages.com/johnbg-leet.html
Netlistamenn (2 álit)
í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er að spá hvort að það séu einhverjir íslenskir netlistamenn sem eru að teikna í Photoshop, 3DMax, Maya eða einhverju öðru séu með heimasíðu.
DV klúður (77 álit)
í Blizzard leikir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Spurning er hvort að einhver ykkar hafi rekist á grein í aukablaði DV, Heimur. Þar sem þeir greina frá WarCraft III. Flest í greininni er svo sem allt í lagi en það sem kom mér mest á óvart er að þeir segja þetta:
“Blizzard Entertainment tölvuleikjafyrirtækið, sem er ábyrgt fyrir gæðaleikjum eins og Warcraft-seríunni, Starcraft og Myst, er nú…”
Er ekki allt í lagi með guttormanna þarna. Myst?!? Ég held nú að liðið sem gerði þennan leik (Broderbund heitir víst fyrirtækið)myndu...
Skjálfta skemmtun (SS) (2 álit)
í Unreal fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Jæja! Eru ekki allir spenntir? Stóri dagurinn er runninn upp og nú þarf maður að fara að flytja tölvuna upp eftir :( helv 19" skjá og tölva sem vegur 30 kíló(skrifarinn er víst svo þungur). Spurning um að fólk muni helst eftir góða skapinu og gleymi ekki neinu og verði stressað. Hlakka til að sjá ykkur á staðnum. Það verður eflaust litið á okkur hornauga af öllu skjálftaliðinu og Counterstrike mönnum þar sem við verðum um 24 UTtarar. Who gives a fuck. Sjáumst á mótsstað.
Teiknipennar (6 álit)
í Vélbúnaður fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Fyrir þá sem íhuga að fá sér Tablet fyrir Photoshop eða þrívíddarforritin hjá sér, þá mæli ég með Wacom Intuos. Wacom teikniborðin eru með þeim bestu sem fást á almenningsmarkaði og ACO eru að selja þessa ákveðnu tegund. Frekari upplýsingar eru að finna á http://www.wacom.com . Þessi borð eru að vísu frekar dýr og má geta að A6 stærðin kostar 22.000 krónur og A5 kostar 35.000. Keypti mér svona fyrir nokkru og það er yndislegt að nota þetta. Svo fylgir með ókeypist Painter Classic sem er...
Spurning (3 álit)
í Hugi fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst svoldið skrýtið afhverju að það eru ekki komnar Huga síður sem eru Tölvuleikir almennt og svoleiðis. Fullt af sniðugu leikjadóti sem maður væri til í að pósta um. Og svo langar manni í Anime/Manga Digital Art Art
www.derbauer.de (3 álit)
í Netið fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Flottasta flash síðan http://www.derbauer.de
Lord of the Rings (0 álit)
í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Fyrir okkur Lord of the Rings fanatics sem geta varla beðið eftir myndunum hefur borist út sú frétt að DVD útgáfur af myndunum muni verða gefnar út stuttu eftir að myndin sjálf verður sýnt og áður en næsta myndin verður sýnd, sem þýðir að við verðum ekki að bíða eftir að allar myndirnar séu búnar áður en þeir gefa þær út.
smá quote
“I work in the promotional field and sent you some images from promotional materials for Lord of the Rings a few months back. Anyway, I don't...
2 Unreal Leikir (3 álit)
í Unreal fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Samkvæmt seinustu heimildum eru tveir Unreal Leikir á leiðinni, Fyrst og fremst er það unreal 2 sem mun halda áfram með single playerið úr Unreal og býst maður nú við að þeir muni búa til brilliant single player leik. Hinn leikurinn aftur á móti mun heita Unreal Warfare og verður hann víst Multiplayer fragfest. Hvort að hann verði eins og UT eða mun þróast í eitthvað eins og Team Fortress 2 veit ég aftur á móti ekki.
Princess Mononoke (6 álit)
í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Í gær sá ég mynd sem ég á seint eftir að gleyma. Þessi mynd, eða teiknimynd, var engin önnur en Princess Mononoke sem sumir hafa beðið lengi eftir. Eftir vonbrigði eins og Titan AE þá var Princess Mononoke eitthvað til þess að svala teiknimyndaþrá minni. Myndin er japönsk að uppruna og er, það sem Japanar kalla, Anime. Ekki vil ég segja frá söguþráðinum öllum en ég ætla að nefna megin plottið. Myndin fjallar um baráttu manns og dýra. Myndin gerist í miðalda Japan þar sem ungur drengur að...
Eilíft Líf (11 álit)
í Dulspeki fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Ein spurning, þótt hún sé kannski ekki beint andlegs eðlis heldur siðferðisleg, finnst mér að hún eigi smá rétt á sér. Ef ykkur byðist eilíft líf. Hvað yrði svar ykkar? Ég er ekki að tala um að verða einhvers konar vampíra heldur frekar eins og fólkið í Highlander. Ekkert gæti drepið ykkur. Að mínu mati yrði þetta án efa ein erfiðasta spurning sem nokkur gæti svarað, en annars þarf það ekki að vera svo. Ég sjálfur myndi eflaust taka þessu tilboði þar sem þar byðist mér líf til þess að...
Móðursjúkar mæður (2 álit)
í Unreal fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Alveg ótrúlegt með Bandaríkjamenn. Um leið og þeim finnst eitthvað of ógeðfellt þá verða þeir að banna það. Hver man ekki eftir því að þegar strákarnir tveir skutu skólasystkini sín og svo var Doom kennt um. Alveg ótrúleg hvað mikið er til af mæðrum sem hafa ekkert betra að gera en að eltast við og kæra tölvuleiki. Nú hafa einhverjir þingmenn ákveðið að grípa enn meira í taumana og hér er smá quote frá þeim:
“Hotshot marketing people working for entertainment companies have...
Nýji korkurinn (2 álit)
í Unreal fyrir 23 árum, 7 mánuðum
Nú er Hugi.is búnir að breyta korka uppsetningu aftur og ég er nú svo ringlaður að ég sting bara höfuð mínu niður í sand. Hvernig finnst ykkur annars nýji korkurinn? <krafla>Gourry
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok