Hver hér man eftir EarthDawn? EarthDawn var basicly Shadowrun heimurinn á fantasíu tímabili þar sem drekar og dvergar voru frekar algengir. Og í staðinn fyrir Classes var fólk kallað Adept (being adept at something) sem notuðu þannig séð orku til þess að gera hetjudáðir sínar. Því miður hætti Fasa að gefa út EarthDawn en samt er frekar sterkur aðdáenda hópur ennþá til. Ég og vinir mínir vorum til dæmis í stóru ED campaigni. Er bara að spá hvort að það er einhver hér sem er líka hrifinn af EarthDawn.

Flugskiping og Sky Raiders voru alveg brill þó að ég hafi alltaf verið Nethermancer.
[------------------------------------]