Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Glades
Glades Notandi frá fornöld 28 stig

Kazaa light/lite (1 álit)

í Netið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvar í fja****** get ég fundið mér Kazaa light? Ok, ég viðurkenni að ég er algerlega tölvufötluð, en ég er búin að vera að leita að þessu út um allt, en virðist bara finna gamla forritið (sem ég er með nú þegar en vil losna við). Ég er að gefast upp á þessu spyware drasli sem er að leggja tölvuna mína undir sig! Getur einhver hjálpað tæknifötluðum aula?

AÐ BAÐA DÚSKINN (1 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég á yndislega dúllu sem er að verða 12 vikna. Hún er nú bara blendingur, en alveg svakalega mikið loðin. Mér dettur helst í hug, og hefur verið sagt af kunnáttufólki að hún sé mjög líklega persablönduð. Allavega hef ég aldrei átt svona mikið loðinn kött áður og ég var að pæla í því að með tíð og tíma þarf ég sennilega að baða hana reglulega. En ef ég byrja ekki á því fyrr en seint og um síðir er ég hrædd um að hún flippi yfir og byrji að hata mig fyrir að vera að gusa á hana vatni. Þannig...

Þolinmæði eða? (6 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Fyrir tveim vikum fékk ég eina yndislega kisudúllu og ákvað að taka aðra inn þegar hún væri orðin örugg á umhverfinu hér. Það gerði ég á þriðjudaginn (í fyrradag), og sú nýja er líka alveg frábær. Vandamálið er samkomulagið þeirra á milli, þær eru hreint út sagt alveg snarvitlausar hvor við aðra. Sú eldri (10 vikna) heldur að sú nýja(7 vikna) sé skemmtilegt dót og hleypur á eftir henni út um allt og ræðst á hana eins og hún gerði með bangsana sína. Nokkuð sem sú yngri er ekki ánægð með. Það...

Persar? (8 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 11 mánuðum
<img align=“left”height=“150”width=“200”src="http://w ww.sltrib.com/photo/staff/al/alart/np4.jpg“>Nú er ég löngu yfirlýst kattakona, reikna með að áhuginn hafi byrjað á fósturstiginu þegar læðan hennar mömmu malaði á kúlunni. Ég fékk þetta semsagt beint í æð. Ég hef átt 5 ketti á minni 24 ára ævi (þar með taldar tvær uppeldissystur mínar), hvern öðrum yndislegri, þótt þeir hafi allir verið ”venjulegir“ húskettir. Undanfarna mánuði, eftir að Músus minn dó hef ég hins vegar verið að velta...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok