Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Gabbler
Gabbler Notandi frá fornöld 514 stig
“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Linux Vefsíðan (28 álit)

í Linux fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Sælir Linux áhugamenn. Veit ekki hvort þetta sé leyfilegt, en ég ætlaði að benda ykkur á að við vorum nokkrir að búa til Linux Vefsíðu. Okkur finnst algjör skortur á vefsíðu sem flytur fréttir úr Linux heiminum. Ásamt fréttasíðu þá erum við með Wiki síðu sem stækkar ört og spjallhluta. Ef þið hafið áhuga þá erum við galopnir fyrir því að birta greinar á síðunni, hvað sem er nánast. Spjallið er einnig opið ef þið hafið fróðleik eða spurningar. Wiki hlutinn er einnig opinn öllum til að bæta...

Smá hugmynd. (5 álit)

í Hugi fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Æ mér datt svona til hugar hvort það væri vitlaust að hafa svona timer á því þegar maður er með músarbendilinn yfir greinarheitum að það mundi birtast eftir svona sirka 2 sekúndur fyrstu 30 stafirnir í greininni… Þá mundi maður kannski sjá hvort greinin höfðaði til manns eða ekki.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Ég þoli ekki.... (2 álit)

í Tilveran fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þegar maður installar forriti eins og MSN og hakar í valmöguleikann að opnast EKKI þegar maður ræsir tölvuna…En viti menn!!!!!!!! ÞAÐ OPNAST!!! Hvað er að þessum helv… bjánum. Þetta er algjörlega óþolandi með mörg forrit hvað þau níðast á manni. Eins og þegar maður hoppar inná einhverja heimasíðu og auglýsingar gera ekkert annað en að poppa upp allan liðlangann tímann. Djöfulsins frekja og yfirgangur!!!

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Vantar DX-7, DX-7 II eða JUNO 106 (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Mig vantar DX-7, DX-7 II eða JUNO 106 syntisizer sem fyrst. Verða að vera í 100% lagi og líta þokkalega út. Sendið mér skilaboð ef þið hafið þessar græjur undir höndum og viljið losna við það. Kveðja Gabbler

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Þoriru að taka skák? (0 álit)

í Skák og bridds fyrir 21 árum, 1 mánuði
Er ekki einhver til í að tefla eina skák hér á korkinum? Allt leyfilegt (nema ólöglegir leikir) Ég byrja með hvítt og svo sjáum við hvort ekki sé stemning fyrir öðrum leik. Kveðja. Hey… gleymdi næstum leiknum. Peð D2-D4

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Kúkurinn í lauginni. (Davíð) (5 álit)

í Stjórnmál fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Sælir. Var Davíð að framja pólitískt sjálfsmorð með þessum gjörning sínum á mánudagsmorgun? Ég er eiginlega kominn á þá skoðun að Davíð sé kúkur í sundlaug sjálfstæðisflokksins. Er ekki kominn tími fyrir flokkinn að sturta niður og skeina sér rækilega? Hversu langt getur maðurinn gengið í svívirðingum og rugli. Ég veit ekki um neinn annan mann sem kæmist upp með það að saka virta (eða óvirta) kaupsýslumenn um að reyna að greiða sér mútur. Hvort Baugur hafi gert það skiptir engu máli Davíð...

Einar Gunnar hættir með FH (0 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Tilkynning á FHingar.is “Handknattleiksdeild FH og Einar Gunnar Sigurðson hafa komist að samkomulagi um að Einar hætti störfum fyrir deildina sem þjálfari m.fl.ka. Árangur meistaraflokks hefur verið langt frá væntingum og eins og staðan er í dag er frekar ósennilegt að FH-liðið nái inn í úrslitakeppnina, nema fyrir einhver kraftaverk en við vonum það besta.” Við FHingar vonumst til að Fh nái að rífa sig uppúr þessari lægð. Leiðinlegt að Einar þurfi að hætta en árangurinn var því miður ekki...

Geimferðastofnun Íslands. (5 álit)

í Geimvísindi fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Titillinn er nú bara grín. En eru einhverjir hér sem hafa gaman af litlum rakettum? Það sem ég hef í huga eu svona 100cm til 200cm langar eldflaugar með föstu eldsneyti. Það væri gaman að spjalla við fólk um svona ef einhverjir eru? Á heima hér að setja inn grein um svona amatör eldflaugar? Ekki viss um að það eigi við geimvísindi. Kannski frekar vísindi og fræði. Kveðja.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Varðandi mynd (Bermúda þríhyrningurinn) (2 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Loyds tryggingafélagið gerði könnun á því hvað mörg skip hafi farist í þessum þríhyrning sem eyjarnar mynda. Niðurstaðan var sú að miðað við hvað það sigla mörg skip þarna framhjá þá er ekkert óeðlilegt við skipsskaðana. (loyds er stærsta skipatryggingafélag í heimi) Kveðja.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Óska eftir netkorti í fartölvu. (0 álit)

í Vélbúnaður fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Eins og titillinn segir…. vantar netkort. Ef einhver er með gamalt þráðlaust netkort til að selja mér fyrir lítið fé þá má hinn sami alveg láta mig vita.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur”

Vísindi og Fræði (7 álit)

í Hugi fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég mæli með allsherjar breytingum á þessu áhugamáli. Heimspeki, Geimvísindi og Sagnfræði verði þarna áfram. En bætt verði við Stærðfræði áhugamáli (raunvísinda eða eðlisfræði kannski). Dulspeki verði fært yfir í Tilveran og Trúmál tekin upp í staðinn. Oft mjög heitar umræður á Trúmál á visi.is og strik.is. Gæti alveg verið það hér líka. (Dulspeki eru ekki fræði eða vísindi en trúmál eru fræði… fattiði) Vona að stjórnendur hér taki þetta til greina og breyti þessu smá. Það er ekki nógu gott...

Ísland 23 - 32 Danmörk (1 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Stórtap okkar manna gegn Dönum. Vonandi rífa þeir sig uppúr þessu. Vörnin míglak og sóknin stóð sig ekki. :/ Kveðja.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur” FH</a

Lánasjóðurinn!!!!!! (10 álit)

í Tilveran fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Lánasjóður íslenskra námsmanna er skítastofnun frá upphafi til enda. Það er alveg hreint með ólíkindum hvað þessi helv….. stofnun getur gert manni mikinn grikk!!!! Ég óska öllum sem vinna þarna alls hins versta á nýju ári!! Þið eruð sko ekki að gera manni lífið auðveldara í erfiðu námi!! Gabbler.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur” FH</a

Passið börnin..... (11 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Skrifað stendur í hinni heilögu bók. Sálm 137:9 Heill þeim er þrífur ungbörn þín og slær þeim niður við stein. Jes 13:16 Ungbörn þeirra munu knosuð verða fyrir augum þeirra, hús þeirra verða rænd og konur þeirra smánaðar. Hós 14:1 Samaría fær að gjalda þess, að hún hefir sett sig upp á móti Guði sínum. Fyrir sverði skulu þeir falla, ungbörnum þeirra skal slegið verða niður við og þungaðar konur þeirra ristar verða á kvið. Mat 14:4 Guð hefur sagt: “Heiðra föður þinn og móður og Hver sem...

Sjónvarpið í kvöld (6.jan) (8 álit)

í Geimvísindi fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ferðin til tunglsins (Dark Side of the Moon: Operation Lune) Frá kl. 20:50 til kl. 21:40 Lengd 50 mínútur Heimildarmynd þar sem fjallað er um samsæriskenningar þess efnis að menn hafi aldrei stigið fæti á tunglið, heldur hafi sú athöfn verið sviðsett.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur” FH</a

Varðandi könnun (markmenn landsliðsins) (2 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Þá mundi ég velja Guðumund sem markmann nr 1… en hafa Roland heitann á bekknum. Ég er ekki viss um hvernig Guðmundur á eftir að vera á HM eða á móti Sloveníu….

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur” FH</a

Varðandi könnun. (6 álit)

í Skák og bridds fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Gaman að sjá að flestir læra skák svona ungir.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur” FH</a

Að horfa á sólina. (aðvörun!!!) (5 álit)

í Geimvísindi fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Í kjölfar póstar sem kom hér rétt á undan þá vil ég vara fólk við því að horfa í sólina þegar hringmyrkvinn verður í maí. Til að horfa í sólina er langt best að horfa í gegnum rafsuðugler eða dökk logsuðugler. Það er hópur af verslunum sem selur þessi gler og þau kosta nánast ekki neitt. Gangið bara inní næstu rafsuðu verslun og biðjið um gler í rafsuðuhjálm með styrkleikanum 9-10. Það eru til nokkrar stærðir af þessum glerjum en það ætti ekki að skipta ykkur neinu máli því ekki látið þið...

Jesús fjöldamorðingi? (35 álit)

í Dulspeki fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég fann þessa snilldarútgáfu af “jesús bróðir besti” á strikinu. Ég held að Zerg sé höfundurinn af þessu…. verði ykkur að góðu. Ó, Jesú, bróðir besti og fjöldamorðingi mesti, æ, breið þú elda þína á fjölskylduna mína. Í eldsofna gef að vera og englar þangað bera, því lík þeirra lykta illa. sem ei Kristni náði að spilla. Það ætíð er þín iðja að hata þá sem ekki biðja, Þitt erindi allir læra Því þung er þín kæra. Þinn dómur engan hlífi eftir þessu lífi, þín hönd í ofninn leiði Því réttlát er...

32-27 (0 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Landsliðið vann pressuliðið með 5 mörkum. Heiðmar Felixson var atkvæðamestur í íslenska liðinu og skoraði alls 10 mörk. Logi Geirsson kom þar næstur með 7. Ekki slæmur árangur hjá Loga. Sérstaklega ef maður lítur á þá staðreynd að þetta er fyrsti leikurinn hans.

“Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur” FH</a

Chessmaster 8000 (2 álit)

í Skák og bridds fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Getur maður einhvernvegin í CM8000 snúið borðinu… það fer rosalega í taugarnar á mér hvernig borðið snýr frá manni. Sé illa á borðið :( Eru annars einhverjir að nota þetta forrit? Kveðja.

FH</a

Sákforrit Frítt? (2 álit)

í Skák og bridds fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Veit einhver um gott frítt skákforrit? Ég hef aðeins verið að kíkja eftir svoleiðis hér á netinu en ekkert fundið… Maður þarf nú að fara að ryfja upp skákina fyrst það er komið áhugamál um hana. Kveðja. ps.. til hamingju skákáhugamenn.

Heil umferð!!!!! (6 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Jæja nú styttist í heila umferð í Essó-deildinni. Svona er mín spá. Þór : Fram Þór vinnur örugglega. FH : Selfoss FH vinnur með 8-10 mörkum. Valur : Haukar Valsarar taka þetta á seiglunni. Stjarnan : ÍR Stjarnan jafnar á síðustu sekúndu. HK : Afturelding HK vinnur með 2-4 mörkum. Grótta KR: ÍBV ÍBV rétt vinna með 1 marki. Víkingur : KA KA taka Víkinga í kennslustund. Jæja…. svo er að sjá .) Kevðja Gabbler.

Askur (1 álit)

í Spunaspil fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Sælir spunaspilarar… Ég keypti mér Ask Yggdrasils fyrir nokkrum árum en hef aldrei nokkurntíman haft tíma eða vit til að geta spilað hann. Er einhverjum sem langar í spilið…. ég held að það sé næstum algjörlega ósnert ennþá uppá lofti hjá mér. Ef einhver vill þá get ég leitað að því og látið hinn sama hafa það fyrir lítið fé. Betra að einhver geti notað þetta heldur en að ég láti það grotna niður hér. Kveðja Gabbler. (sendið msg ef þið hafið áhuga)

Logi Geirs (0 álit)

í Handbolti fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég vildi nú bara tjá mig um hann Loga…. Maðurinn er að brillera með FH þessa dagana. 14 mörk í kvöld og 15 í síðasta leik. Maður sem andstæðingar FH ættu að fara að varast. Kveðja Gabbler.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok