Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Fridel
Fridel Notandi frá fornöld 48 stig
kveðja Fridel

Vantar gott heimili (3 álit)

í Hundar fyrir 18 árum
Labrador/bordercollí blending vantar gott heimili. Vegna breyttra heimilisaðstæðna þurfum við að gefa hann Jón okkar. Hann er 3 ára blíður og góður hundur. Hann er mikil félagsvera og hefur mikla orku. Endilega sendið okkur línu ef þið hafið áhuga be_spork@hotmail.com

Rúlla niður í plastkúlu (1 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 5 mánuðum
hæ hæ Ég er svona að velta fyrir mér hvort einhver hafi prófað að rúlla niður brekku í svona plastkúlu….veit ekki alveg hvað þetta kallast eða hverjir eru með þetta…..en þetta leit mjög spennandi út. Sá þetta í Popptíví. Hefur einhver prófað þetta eða hefur einhver einhverjar upplýsingar um þetta….hættulegt eða hættulaust….klikkun eða geðveiki :)

jólaforréttur (1 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum, 5 mánuðum
Hæ hæ Ég var að spá hvort einhver gæti hjálpað mér. Þannig er að ég er í fyrsta sinn að fá alla fjölskylduna í mat til mín á aðfangadag og vill alls ekki valda þeim vonbrigðum. Mig vantar svo einhvern góðan forrétt….kannski eitthvað með reyktum eða gröfnum laxi eða eitthvað álíka. ef þú ert með einhverja góða hugmynd væri gaman að heyra. Aðalrétturinn verður tvískiptur, þ.e. bæði svínahamborgarahryggur og kjúklingur (ekki spyrja mig með kjúklinginn, einhver hefð í fjölskyldunni)...

Fitumæling ????? (1 álit)

í Heilsa fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég er búin að vera að spá í hvar sé best að fara í svona fitumælingu, blóðþrýstingsmælingu og blóðsykursmælingu. Ég veit að þetta er gert á þessum líkamsræktarstöðvum, en ég treysti ekkert alltof vel þessum aðferðum og þessum tækjum sem gera þetta. Eru einhver abótek eða eitthvað svoleiðis sem taka mann í svona allsherjar tékk.

Sushi (3 álit)

í Matargerð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hæ hæ Ég er nýorðin svolítið húkkt á því að borða sushi. Mér finnst það bara alveg rosalega skemmtilegur matur og skemmtilegt að borða hann. Þetta er allt svo litríkt og mismunandi, eins og eitthvað skraut. Þannig er að mér langar svo að búa sjálf til sushi, en veit ekki alveg hvernig ég á að snúa mér í því. Er einhver þarna sem kann eitthvað í því. Hvernig maður gerir þetta og hvar er best að fá hráefnið. Mér finnst þetta vera svolítið mikið dýrt á þessum stöðum, þar sem að þetta er að...

Búr eða ekki búr (41 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Mig vantar smá aðstoð. Þannig er að við eigum lítinn hvolp, og erum búin að eiga hann í 2 vikur. Hann er rosa sprækur og vill mikið leika sér á nóttinni. Okkur var ráðlagt að hafa hann í búri á nóttinni, en ég var nú ekki mjög spennt fyrir því. Fannst það vera hálf grimmdarlegt. En við fengum lánað búr og ákv. að prufa þetta. Það hefur ekki gengið vel. Okkur var sagt að við ættum bara að láta hann gelta, og reyna að vorkenna honum ekki. Hleypa honum bara út að pissa á 2 tíma fresti. En málið...

Óska eftir hundabúri (1 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Óska eftir hundabúri fyrir labradorhund. Vinsamlegast hafið samband: be_spork@hotmail.com

Loksins er hann Jón kominn!!! (6 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hæ hæ Nú erum við loksins komin með hvolp, hann Jón okkar. Hann er blanda af labrador og border kollý, (alveg rosalegt krútt ). Hann er reyndar rosa lítill, aðeins 5 vikna. Mamman vildi ekki hafa hvolpana lengur, hún var orðin svo horuð og farið að blæða úr spenunum . Þó hann sé lítill er hann rosa sprækur og algjör prakkari. Svo þegar hann er búinn að pissa eða kúka á gólfið horfir hann á mann með þessum stóru fallegu augum, og maður bráðnar alveg. Þetta er nú reyndar bara annar dagurinn...

Er að leita mér að labrador hvolp (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum
hæ hæ Ég er að leita mér að labradorhvolp. Gott heimili og stór garður. Ef einhver getur hjálpað mér hafið samband be_spork@hotmail.com
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok