Þú meinar Rapparakvikindið Eminem á von á enn einni lögsókninni, í þetta skiptið vegna innihalds texta sem hann samdi við lagið “Brain Damage”. Í textanum talar Eminem um hvernig feitur hálfviti hafi strítt honum daglega í æsku, og feiti hálfvitinn heyrði lagið og hugsaði: “Ég er ekki feitur hálfviti, ég gerði honum aldrei neitt, ég málsæki af honum afturendann”. Að sjálfsögðu er mannorð feita hálfvitans ónýtt, og það eina sem getur bætt þann skaða upp eru um 1 milljón dala. Þá er bara að...